Ferðaáætlunin komin inn
Jæja þá er ferðaáætlun sumarsins komin á sinn stað svo að vonandi geta þessir óþreyjufyllstu tekið gleði sína á ný:-) – Kveðja Netstjórinn
Ferðaáætlunin komin inn Read More »
Jæja þá er ferðaáætlun sumarsins komin á sinn stað svo að vonandi geta þessir óþreyjufyllstu tekið gleði sína á ný:-) – Kveðja Netstjórinn
Ferðaáætlunin komin inn Read More »
Jæja þá er kominn botn í staðsetninguna á ferðafundinum …. og verður hann haldinn á 2. hæð í Karlakórshúsinu að Eyrarvegi 67, á Selfossi. Og hefst fundurinn kl. 14:00.
Við vorum með rangt heimilifang í eldri frétt og biðjumst velvirðingar á því.
ÞAð er einfalt að rata á staðinn en ef t.d er komið úr Reykjavík, eða úr þeirri áttinni, er beygt TIL HÆGRI (Eyrarvegur) útaf hringtorginu þegar komið er yfir brúna og ekið í gegnum næsta hringtorg og er Eyrarvegur 67 á gatnamótum Suðurhóla og Eyrarvegs á vinstri hönd. Afleggjarinn að fugvellinum(fyrir þá sem vilja gista í húsbílunum) er nokkur hundruð metrum lengra á hægri hönd.
Sjá kort þegar smellt er á LESA MEIRA
Fréttafundurinn – Leiðrétt heimilisfang Read More »
15. – 17. júní – Hvolvöllur / Eyjar Ath. þann 16. verður dagsrútuferð til Eyja. Skráning í þá ferð verður auglýst síðar.
Hvolvöllur / Eyjar 15. – 17. júní Read More »
14. – 22. júlí Stóra-ferð: Vestfirðir/Strandir
Dagur 1
Lau – Hólmavík
Dagur 2
Sun – Dalbær Snæfjallaströnd
Dagur 3
Mán – Heydalur
Dagur 4
Þri – Súðavík
Dagur 5
Mið – Ísafjörður
Dagur 6
Fim – Ísafjörður
Dagur 7
Föst – Bolungarvík
Dagur 8
Lau – Bolungarvík / Lokahóf með mat í Félagsheimili Bolungarvíkur
Dagur 9
Sun – Heimferð!
Athugið að hver og einn ræður sínum brottfarartíma, og á það við um alla dagana,
Stóraferðin 14. – 22. júlí – Vestfirðir/Strandir Read More »
17. – 19. ágúst Helgarferð – Laugaland í Holtum
Helgarferð 17. – 19. ágúst Read More »
6. ferð
7. sept – 9. sept
Brautartunga í Lundarreykjadal
Sundlaug á staðnum
Helgarferð 7. – 9. sept – Brautartunga í Lundareykjadal Read More »
7. ferð, 28. – 30. sept: Lokaferð,og Árshátið Hjálmakletti Menntaskólanum
í Borgarnesi
Lokaferðin – Árshátíðin 28-30. sept Read More »
Ágætu félagar, nú er um að
gera að greiða hið árlega félagsgjald sem er 4.000,–kr. inn á reikning
félagsins 0542-26-276 kt. 681290-1099, látið koma fram kennitölu þess sem
greiðir og ef þið getið, nr. bíls.Eftir 10. mars n.k. munum við
senda út gíróseðla og þá bætist við 350,–kr. innheimtukostnaður sem er
bankakostnaður.
Félagsgjaldið 2012 þarf að
Félagsgjöldin 2012 Read More »
Ágætu félagar
nú þegar hafa 30 manns skráð sig í óvissuferðina og betur má ef duga
skal. Verið óhrædd að fara á vit ævintýranna, alltaf gaman að láta koma
sér á óvart og fara aðeins út úr þægindahringnum. Komið við á 5 stöðum
athyglisvert, hafið eitthvað með ykkur til að nærast á fyrstu klukkutímana í
föstu og fljótandi en svo er endað með kaffihlaðborði og þar verður happdrætti,
númer bíla þeirra sem mæta verða sett í pott og dregnir út fjórir
góðir vinningar, bensínúttektir 2 x 15.000 og 2 x 10.000 þetta eru kort frá Orkunni/Skeljungi.
SKRÁNING Í ÓVISSUFERÐINA 3. MARS N.K. Read More »
Kæru félagar.Við framlengjum frestinn til að greiða félagsgjaldið beint inn á reikning félagsins til 1.apríl n.k. því er um að gera að greiða félagsgjaldið sem er 4.000,–kr. inn á reikning félagsins 0542-26-276 kt. 681290-1099, látið koma fram kennitölu þess sem greiðir og ef þið getið, félagsnúmer bíls.
Eftir 1. apírl n.k. munum við senda út gíróseðla og þá bætist við 350,–kr. innheimtukostnaður sem er bankakostnaður. Félagsgjaldið 2012 þarf að vera búið að greiða fyrir 1. maí skv. nýju lögunum sem samþykkt voru á síðasta Aðalfundi, ef félagi hefur ekki greitt fyrir þann tíma getur hann misst númerið sitt.
Við minnum á ferðafundinn sem verður laugardaginn 24. mars n.k. í Félagsheimili Karlakórs Selfoss, að Eyravegi 67, 2h.(Karlakórshúsinu) Þeir sem hafa hug á því að koma á húsbílunum mega gista á gamla flugvellinum, en gamli flugvöllurinn handan götunnar rétt neðan við fundarstaðinn.
Félagatalið 2012 ásamt félags-og afsláttarskírteinunum, verður afhent á ferðafundinum eftir fund, (meðan kaffið er) þeim sem hafa greitt félagsgjaldið fyrir ferðafundinn 24.mars n.k.
Vonandi fjölmennið þið á ferðafundinn, það verður spennandi að sjá hvert á að fara í sumar.Þar sem ekki verður sent út fréttabréf til þeirra sem hafa ekki netföng, viljum við biðja ykkur að láta félaga ykkar og vini sem þið vitið að eru ekki tölvuvæddir, segja þeim frá ferðafundinum.
Með bestu kveðju f.h. stjórnar, ferða-og skemmtinefndar, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður Félags húsbílaeigenda
Munið að greiða félagsgjöldin Read More »