Könnun sem félagið gerði á aðalfundi

 

 

Könnun sem stjórn lagði fram á aðalfundi félagsins 19.okt. 2013.

Alls  tóku 78 félagar þátt í könnuninni. 

 

Samantekt:

Er lang síðan þú/þið genguð í félagið?

    Meðalaldur þeirra er svöruðu,  hafa verið í félaginu í  10 ár ,

Nokkrir höfðu verið næstum frá stofnun og aðrir nýkomnir í félagið.

Hvað fórst þú í margar ferðir með félaginu s.l. sumar  ?

   Meðaltalið voru 4 ferðir yfir árið,  nokkrir fóru í allar ferðir og aðrir bara t.d. í 1 ferð.

Hefurðu ferðast mikið með félaginu   c.a. hvað margar ferðir á ári

…. Meðaltalið eru 4 ferðir á ári.

Fórstu í Stóru-ferðina?

—70% sem tóku þátt í könnuninni fóru í Stóru-ferðina

Hvernig fannst þér Stóra-ferðin?  Eitthvað sem þið viljið taka fram ?

—90% sem fóru í Stóru-ferðina voru ánægðir.  Þeir sem voru óánægðir sögðu: Veðrið hefði mátt vera betra—ferðin of dýr—of stutt á milli stoppa—skipulag ábótavant—upplýsingflæði of lítið—sungið of lítið—klúður með tjaldstæði—ekki farið eftir fyrirmælum um tjaldstæði.  Nokkrir hrósuðu nefndarmönnum fyrir vel skipulagða Stóru-ferð og skemmtilega og halda vinaleiknum áfram.

Hvað vilt þú/þið hafa margar skipulagðar ferðir á sumri

–Meðaltalið var 6 ferðir,  mörgum fannst þetta fínt eins og það hefur verið

Á félagið að vera með Árshátíðina á Hóteli

25% vilja árshátíð á Hóteli,  75% sögðu Nei

Eigum við að vera með Lokaferðina og Árshátíð saman

70% vilja lokaferð og árshátíð saman  30% ekki saman, sitt í hvoru lagi.

Ert þú/þið að nýta ykkur afsláttarkjörin sem félagið hefur fengið

85% svaranda nýta afslætti sem félaginu er veittur  15%  nýta ekki afslætti sem félagið fær

Er eitthvað sem þér/ykkur finnst vanta í félagatalið

–90% svarenda ánægðir með félagatalið eins og það hefur verið undanfarin ár, nokkrir komu með athugasemdir: vantar myndir af félögunum— að félagatalið sé nákvæmara—kennsla. fræðsla  í  því  sem viðkemur útivist.-

Komst þú/þið í 30.ára afmælið 

–96% þeirra sem svöruðu komu í  30 ára afmæli félagsins

Varst þú/þið sátt við hvernig staðið var að afmælinu

—-Þeir sem komu voru mjög sáttir 

Einhverjar óskir með ferðir í sumar

85% sem svöruðu höfðu enga skoðun um ferðir í sumar og sögðu margir að þeir treystu bara ferðanefndinni fyrir þessu.

Staðir sem nefndir voru t.d voru Strandir—Austurland—Vestfirðir—Suð-austurland—Suðurland—Ferð til Færeyja—Þakgil—Vestmannaeyjar—Suð-vesturland—Grindavík—Reykjanesið—Blái demanturinn—Langbrók–

Á félagið að vera með góugleði–óvissuferð–þorrablót  eitthvað

—90% sem  svöruðu vildu hafa eitthvaðaf þessu þrennu en flestir nefndu “þorrablót”, hafa þetta til skiftis sögðu nokkrir—10% vildu ekkert og fannst sumum vera nóg af þessu á öðrum vettfangi.

Skoðar þú heimasíðu félagsins mikið husbill.is  hversu mikið?

—95%  sem svöruðu, skoða heimasíðuna reglulega 

Ertu ánægður með heimasíðuna?

—þessi 80%  eru nokkuð ánægðir með heimasíðuna, þaðsem bent var á er: Heimasíðan dauf en það er okkur félögunum sjálfum að kenna—Gestabókin dauð—of mikið komið á facebook—kemur seint ogilla inn á hana efni sem sent er—-leiðinlegt að leita að fólki í félagaskránni—Vantar meiri virkni á síðuna—mjög lítil samskifti félaganna á heimasíðunni vantar fleiri  félaga inn– 

Hvað viltu hafa á heimasíðunni?

Allt sem máli skiftir fyrir félagið—Almennar fréttir—taka upp myndagetraunina  aftur—Meiri fréttir af félögunum—Tjaldstæðasíður erlendis—

 Eitthvað sem þið viljið koma á framfæri, tjáið ykkur.

Ábendingar sem komu fram:   Óþarfi að hafa svona viðamikið kaffihlaðborð— of dýrar hljómsveitir—óþarfi að vera með svona mörg barmmerki yfir sumarið—það þarf ekki alltaf að vera hús í ferðum,  þetta er útivistarfélag—Finnst vanta  að nöfn látinna félaga komi fram einhversstaðar hvort sem er á heimasíðu eða fréttabréfi—Hafa árshátíð þannig að allir geti komið á bílunum sínum, hafa hana þá það snemma að allir geti komið líka þeir sem búa úti á landi—Vil að félagið standi meira sem málsvari þegar kemur að ýmsum hagsmunamálum sem og landverndarmálum. Við eigum að láta rödd okkar heyrast og stjórnin þarf að vera virkari að senda frá sér yfirlýsingar—-Láta fólk leggja bílum við þann næsta sem kom, ekki láta fólk para sig saman í klíkum—Vantar talstöðvar í bílana— Nota meira tjaldstæðin sem útilegukortið gildir. Seinka skoðunardeginum c.a. miðjan maí.

Hrós: Góður félagsskapur—    Stjórn og nefndir standa sig mjög vel–   -Svo sátt— Flott  félag—Frábær formaður–

Könnun sem félagið gerði á aðalfundi Read More »

Átt þú húsbíl og ert ekki í Félagi húsbílaeigenda???

Við viljum vekja athygli þeirra sem eiga húsbíl og eru ekki í Félagi húsbílaeigenda að nú er kjörið tækifæri að ganga í þennan skemmtilega félagsskap. 

Á  aðalfundi félagsins er kosinn sjö manna stjórn, fjögurmanna ferðanefnd og fjögurmanna skemmtinefnd. þessir fulltrúar sjá um að stjórna félaginu, skipuleggja ferðir félagsins og undirbúa skemmtanir félagsins. 

Félagið stendur fyrir ýmsum skemmtunum yfir árið, á þessu ári voru það átta skipulagðar ferðir og uppákomur sem félagið stóð fyrir. Má þar nefna  góugleði , óvissuferð, hvítasunnuferð, helgarferðir ,árshátíð á Hótel Örk og síðast en ekki síst er það stóra ferðin sem er níu daga ferð og er hún yfirleitt farinn um miðjan júlí s.l sumar var farið á Norð-vesturland. Í ár varð félagið 30 ára og var haldinn stórveisla í íþróttarhúsinu í Garðinum þar mættu um fjögurhundruð manns.  Að síðust ætlar félagar að hittast í þann 7 des í aðventukaffi. 

Í ferðum okkar er yfirleitt dagskrá og oft heilmikið um að vera, spiluð félagsvist , bingó, skemmtiatriðin er oft  heimatilbúin og stundum aðkeypt.Innan félagsins er hljóðfarleikara sem halda upp stuð og stjórna og fjöldasöng , einnig eru  haldnir dansleikir  með aðkeyptum hljómsveit Félagið er með með afslætti hjá hinum ýmsum fyrirtækjum sjá nánar á  heimasíðu okkar http://www.husbill.is/

Ef þið viljið gerast félagar núna þá farið þið hér inn “gerast félagi”  http://www.husbill.is/forums/user/register

Stofngjald er aðeins 1.500kr innifalið er númer, félagsmerki, félagsskírteini, afmælisblaðið, og félagatalið 2013. 

Er þetta ekki einmitt félagsskapurinn fyrir þig, láttu á það reyna.

Mjög góð vináttubönd hafa myndast í þessum félagskap.

Hlökkum til að sjá þig, stjórn, ferða-og skemmtinefnd Félags húsbílaeigenda.

Átt þú húsbíl og ert ekki í Félagi húsbílaeigenda??? Read More »

Dagskrá Hótel Örk

Ágætu félagar.

Nú er  að koma að Árshátíðinni að Hótel Örk en hún er um næstu helgi 1.-3.nóv. n.k.  Flestir ætla að gista tvær nætur og geta gestir komið á hótelið um kl. 15.00 á föstudeginum og þeir sem koma á laugardeginum  geta komið um kl. 15.00. 

Við munum koma saman í kjallaranum á hótelinu á föstudagskvöldinu svona um kl. 21.00-21.30 spjalla og syngja, kannski verða einhverjir með hljóðfæri með sér, og þá er hægt að taka lagið. 

Hér fylgir dagskráin fyrir laugardagskvöldið.

Ásrshátíðin 2.nóv. 2013 

 Félag húsbílaeigenda býður gestum sínum upp á fordrykk á barnum kl 19:30  fyrir framan stóra salinn sem við verðum í.

Sest að borðum um kl. 20.00 og matur svo framreiddur eftir að fólk hefur pantað sér borðvín.

Formaður setur skemmtunina.

Veislustjórn er í höndum Elínar Írisar og Daða Þórs nr. 39 en þau eru nýtekin við skemmtinefndinni, ásamt Halldóru og Einari á 392. 

Áætlað er að skemmtiatriðin byrji um kl. 21.00 

Meðal skemmtiatriða eru:

1. Samkvæmisleikir

2. Bílnúmerahappdrætti

3. Afhending “Gedduverðlauna”

4. Skemmtinefnd flytur atriði sem þau hafa tekið saman.

5. Systurnar Sigríður og Sólborg Guðbrandsdætur flytja nokkur lög við undirleik föður sins Guðbrands  Einarssonar.

6. Fjöldasöngur inn á milli atriða.

7. Upp úr kl. 22.00 byrjar svo hljómsveitin Bandalagið  að spila fyrir dansi, en það eru þeir Guðbrandur   Einarsson og Vignir Bergmann  (Bubbi og Vignir) sem  sjá til þess að við dönsum, valsa,polka, ræl og   tvistum og tjúttum.  

Það eru nokkur herbergi laus og þarf fólk að hafa hraðar hendur með að tilkynna sig og einnig ef fólk vill koma bara á skemmtunina á laugardagskvöldið þá þarf að panta það  NÚNA.

Ræða formanns  á Aðalfundinum 19.okt. s.l. er komin inn á heimasíðuna undir “fréttabréf”. http://www.husbill.is/greinar/view/adalfundur-19.okt-2013 

Við erum að vinna úr könnuninni sem þið félagarnir tóku þátt í á aðalfundinum og munu niðurstöður verða kynntar í fréttabréfi bráðlega.

Hlakka til  að sjá ykkur sem hafið ákveðið að koma á árshátíðina.

Góða skemmtun.

Soffía G. Ólafsdóttir, formaður Félags húsbílaeigenda.

Dagskrá Hótel Örk Read More »

Fréttabréf hefur verið sett inn á heimasíðuna

Ágætu félagar.

Hvert fór sumarið, mikið líður tíminn hratt, aðeins 75 dagar til jóla, svei mér þá jólin verða komin áður en ég sný mér við, er ég orðin svona svifasein í seinni tíð. Október-mánuður er bleikur mánuður og er það Krabbameinsfélagið sem nýtur þess góða framlags sem söfnunin á bleiku slaufunni gefur af sér og fann ég hér fallegt ljóð eftir Heiðu Jóns. á vinabókinni og læt það fylgja hér með:

Bleikum mánuði bregðumst við og bætum hag þeirra veiku.

Ef krabbameinsvaldinn þekkið þið, þá kaupið slaufuna bleiku.

Á þinginu eru menn í kappræðum og talar hver sem betur getur um vanda og ekki vanda eftir hvernig menn líta á silfrið og munu eyða ómældum tíma í að vera ósammála síðasta ræðumanni, mikið er nú gott að vera ekki á þingi…..

Sjá nánar upplýsingar um
Fréttabréfið er inn á heimasíðunni 
http://www.husbill.is/greinar/view/okt-2013

Fréttabréf hefur verið sett inn á heimasíðuna Read More »

Nú þarf að staðfesta pöntunina á Hótel Örk 1.-3.nóv. n.k.

Kæru félagar.

Þeir sem hafa pantað á árshátíðina á Hótel Örk 1.-3.nóv. n.k.  þurfa nú að fara að staðfesta pöntunina með því að greiða inn á  reikning félagsins  sem er  0542-26-276  kt. 681290-1099   og setja í texta “árshátí𔠠 

Gisting með morgunverði, þriggja rétta máltíð, skemmtun og dansleikur, þá er gjaldið 23.700,– kr.  þetta gjald leggið þið inn á reikning félagsins,  aukanótt fyrir hjón kostar 6.900,– kr. og það greiðið þið þegar þið skráið ykkur inn á hótelið.

Fyrir einstakling kostar gisting með morgunverði, þriggja rétta máltíð, skemmtun og dansleik 16.800,– sem þið leggið inn á reikning félagsins, aukanótt kostar 4.900,– kr. og það greiðið þið þegar þið skráið ykkur inn á hótelið.

Þeir félagar sem vilja koma á árshátíðina  á laugardagskvöldinu, í þriggja rétta máltíð, skemmtunina og dansleikinn eru hjartanlega velkomnir og kostar  það 6.000,– kr.  pr. mann  (var vitlaust verð í fréttabréfinu síðast “sorry”)  en þið þurfið að panta hjá Soffíu og greiða líka næstu daga.  

Dagskrá fyrir árshátíðina mun verða sett hér inn  bráðlega. 

Ég ætla að biðja ykkur sem hafið skráð ykkur á árshátíðina að staðfesta pöntunina með því að greiða inn á reikning félagsins á næstu dögum, nokkrir skrifuðu sig þegar ferðafundurinn var í mars s.l.

Það eru nokkur herbergi laus svo endilega hafið samband við Soffíu í síma 896-5057 eða með tölvupósti 

husbill@husbill.is

Hlakka til að hitta ykkur og eiga góða stund með ykkur.

Með bestu kveðju

Soffía G. Ólafsdóttir, formaður

Nú þarf að staðfesta pöntunina á Hótel Örk 1.-3.nóv. n.k. Read More »

Lokaferðin 2013 Félagsgarður í Kjós 27.- 29. sept.

Kæru félagar, þá er komið að síðustu útilegu hjá okkar flotta félagi, sem er helgina 27.-29.sept. n.k. að Félagsgarði í Kjós. 
Vonandi verða veðurguðirnir til friðs og við mætum sem flest og  skemmtum okkur saman, dagskráin fylgir hér með og ef þið viljið hafa hana í bílnum þá endilega prentið hana út sjálf,  hún verður ekki prentuð út af okkur, en við munum setja eintak á vegg inn í félagsheimilinu. 
Eins og þið sjáið er margt um að vera og svo er það bara samveran með ykkur sem er svo einstök.
Við viljum biðja ykkur um að hafa gjaldið fyrir helgina tilbúið, akkúrat, eða kr. 2.000,– á bíl Gestir greiði kr. 3.000,– á bíl.   
Þið fáið afhent merki og doppu,  við greiðslu, merkið  hafið þið  á ykkur alla helgina.
 Þar sem ekki eru rafmagnstenglar á svæðinu þá endilega hafið luktirnar ykkar með og við kveikjum á þeim og sköpum stemmingu fyrir utan bílana. 

Föstudagur 27 sept. Hattadagur: 
21:30-22:30 Koma upp í hús og skemmta okkur saman, 
 Fyrst dansatriði  Black and White
 Svoooo  Magadans
 Svoooo  Leikþáttur
22:30 – 23:30 Óvænt uppákoma, fer eftir veðri. Fellur niður ef Kári verður vondur
Síðast en ekki síst skulum við taka lagið saman ,allir að mæta með söngbækur
23:30 – 01:00 Eða taka létta æfingu fyrir ballið á Laugardagskvöldið
Laugardagur 28 sept.
12:00 – 13:30 Kjötsúpa í boði félagsins
14:00 – 15:30  Markaður í Félagsheimilinu. (Hver græi fyrir sig.) Söngbækurnar á góðu verða til sölu  
16:00 – 17:00 Bingó spilaðar   5 umferðir 
21:15 – 21:30 Verðlauna afhending og Bílahappdrætti
21:30 – 22:30 Útsvar lokakeppni á milli SHS og Sjóarans Sífulla
22:45 – 03:00 Dansiball  Kapparnir sem slógu svo ærlega í gegn í Kjósinni í fyrra  
 Þeir Stúlli og Dúi frá Siglufirði leika fyrir dansi
Sunnudagur 29 sept.
 *Hjálpa til við frágang í Félagsheimili* Takk fyrir helgina og góða ferð heim !

Lokaferðin 2013 Félagsgarður í Kjós 27.- 29. sept. Read More »