admin

Fréttabréf farið í póst – Aðalfundurinn og fl.

Ágætu félagar.Búið er að senda út fréttabréf október mánaðar í pósti til
allra félaga í Félagi húsbílaeigenda. Í  því er  einnig fundarboð
fyrir aðalfundinn 15. okt. n.k. í Hásölum í Hafnarfjarðarkirkju sem hefst kl. 14.00.
Fundarboðinu fylgja breytingar á lögum félagsins sem stjórnin leggur til og
farið verður yfir á aðalfundinum og bornar upp til samþykktar. Endileg hafið með
ykkur á fundinn lögin og breytingarnar á þeim, því við munum ekki ljósrita þau og
úthluta á fundinum, þar sem við sendum þetta á alla félaga.
Hlökkum til að sjá ykkur á aðalfundinum.
F.h. Stjórnar, ferða-og skemmtinefndar Félags húsbílaeigenda,Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.

Fréttabréf farið í póst – Aðalfundurinn og fl. Read More »

CO2 losun – Lækkun bifreiðagjalda

Ágætu félagar.
Talsvert hefur verið um það að
haft hafi verið samband við  mig vegna þeirra hækkunar sem hafa orðið á
bifreiðagjöldum á þessu ári sem stafa af skatti  sem settur var á húsbíla
og flutningabíla svo kölluð CO2 losun (vegna mengunar útblásturs).
Fyrirtækið  Tækniþjónusta Íslands  býður öllum þjónustu sína með því að senda út upplýsingar um hvern og einn bíl
og kostar það okkur 1.250,– kr. til að athuga hvort lækkun verði á þessu
gjaldi sem bíllinn hefur fengið á þessu ári. Þetta þarf að gera við hvern bíl
fyrir sig, því verður hver og einn að hafa samband við Tækniþjónustu Íslands og
þeir athuga hjá samstarfsaðila sínum í Evrópu hvort til séu gögn yfir
viðkomandi bíl. Það er um að gera að nýta sér þessa þjónustu hjá Tækniþjónustu
Íslands og freista þess að ná niður kostnaði á bifreiðagjöldunum. Lesið vel
leiðbeiningarna hér fyrir neðan og farið inn á heimasíðu þeirra og þar getið
þið skráð ykkur eftir að þið hafið aflað þeirra gagna sem til þarf.
Með von um að sem flestir geti
lækkað hjá sér bifreiðagjöldin. 
Með kveðju, Soffía
Hérna eru leiðbeiningarnar og eins getið þið farið á leiðbeingasíðuna undir linknum:FÉLAGIÐ – GAGNLEGAR UPPLÝSINGAR – nú eða farið beint á vef  Tækniþjónustu Íslands

CO2 losun – Lækkun bifreiðagjalda Read More »

Félagar óskast í stjórn og nefndir

Ágætu félagar, nú vantar fólk í stjórn og nefndir  félagsins, í stjórn vantar fjóra aðila. Í ferðanefnd vantar tvo aðila og í skemmtinefndina vantar tvenn hjón. Ég hvet ykkur ágætu félagar að gefa kost á ykkur til starfa í félaginu. Það er gaman að spreyta sig á nýjum verkefnum og um leið að hafa áhrif á að gera gott félag enn betra. Endilega hafið samband við Soffíu formann í síma 896-5057 eða með tölvupósti husbill@husbill.is  
Allar ábendingar eru vel þegnar. Koma svo gott fólk.
Með bestu kveðju, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður

Félagar óskast í stjórn og nefndir Read More »

Húsbílaferð 19 – 21 ágúst 2011 – Garðaskagi

Húsbílaferð 19 – 21 ágúst 2011 – GarðskagiÞað sem er í boði er eftirfarandi:Ø  Byggðasafnið er opið alla daga frá 13 – 17 . Í sýningasal safnsins verður sýnd kvikmyndin árásin á Goðafoss.Ø  Stóri vitinn opinn, flott að fara upp í hann skoða útsýnið og taka myndir.Ø  Hólmsteinn verður opinn, þar verður spiluð sjómannalög, og jafnvel aðalvél sett í gangi.Ø  Mjög góður strandblakvöllur er á staðnum, upplagt að sprikkla þar.Ø  Sjósund hefur verið mjög vinsælt hér í fjörunni, fólk ætti að skoða það.Ø  Fjöruferð, fuglaskoðun ofl.
Ø  Laugardagur kl 15Söguganga frá safninu ca 500 m radius frá safninu, þetta er létt ganga sem tekur ca 1 – 1½  tíma.
Ø  Öll atriðin eru algjörlega frjáls, hver og einn gerir það sem honum hentar. Þetta er gjaldfrí ferð allt ókeypisØ  ( Heyrst hefur að harðfisksali komi á laugardeginum að bjóða mjög góðann fisk til sölu)

Húsbílaferð 19 – 21 ágúst 2011 – Garðaskagi Read More »

Sértilboð frá ORKUNNI

Tilboð dagana 9. & 15. júlí verða -10 kr. sérkjör, bæði hjá Orkunni og Skeljungi, fyrir meðlimi Félags húsbílaeigenda, vegna ferðar um Snæfellsnes. Til að geta nýtt sér þessi sérkjör þarf að vera með tengt staðgreiðslukort eða lykil Orkunnar eða Skeljungs. Þar að auki hafa almenn kjör félagsmanna verið uppfærð í 7 kr. hjá Skeljungi og 5 kr. hjá Orkunni. (Sjá næstu frétt neðan við)Skráðu þig á http://www.orkan.is/  og fáðu Orkulykil, merktan félaginu, sendan frítt heim!
Orkan sími 578 8800 – orkan@orkan.is – www.facebook.com/OrkanBensin 
Skoða pdf skjalið sem innihaledur tilboðið

Sértilboð frá ORKUNNI Read More »

ORKU Tilboðin

ORKAN býður félagsmönnum í Félagi húsbílaeigenda Orkulykil með sérkjörum. Sérkjörin tryggja þér allar gerðir af eldsneyti og úrvalsþjónustu á góðum afslætti í hvert sinn sem þú greiðir með Orkulyklinum (eða Orkukorti) hjá Shell eða Orkunni um land allt.
Sérkjörin miðast við afslátt af dæluverði (verðskilti á stöð) og eru nú:

ORKU Tilboðin Read More »