Kleppjárnsreykir í Borgarfirði helgina 29.-31.ágúst n.k.

Kleppjárnsreykir í Borgarfirði helgina 29.-31.ágúst n.k.

Verð á bíl helgin 2.500,–kr.  rafmagn er 1.000.—kr. pr. sólarhring, fólk greiðir hjá staðarhaldara. 

Á föstudagskvöldinu býður staðarhaldari upp á súpu, nýbakað brauð og smjör og kaffi á eftir  á 1.300 kr,  einnig er hann að bjóða okkur: Tilboð bjór 700kr   Tilboð réttur dagsins lasagna 2000kr

 

Við megum sitja þar inni ef við viljum, rabba saman, spila, syngja, en hann er með vínveitingaleyfi og við getum keypt hjá honum “ÖL” en hver og einn hefur þetta eftir sínu höfði en ef veðrið er gott þá hugsa ég að við sitjum úti í góða veðrinu,  en þetta spilum við allt eftir veðrinu.

Á laugardaginn ætlar stjórnin að bjóða upp á vöfflur, rjóma og sultu, um kaffileytið, það verður vösk sveit manna að baka vöfflur og eins og alltaf þá segi ég,  vona svo sannarlega að veðrið verði gott svo við getum hópast saman og myndað góða stemmingu, jafnvel farið í “kubb” en það er engin sérstök dagskrá þarna við skemmtum bara hvort öðru.

Staðarhaldari er með eitthvað gott á matseðlinum ef þið viljið snæða þar inni. 

Gott krækiberjaland er nálægt Kleppjárnsreykjum þar sem fólk má týna.

Við í stjórn og nefndum vonumst til að sjá ykkur sem flest, og endilega komið með sólina með ykkur!!!!

Bestu kveðjur.

f.h. stjórnar, ferða-og skemmtinefndar 

Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.

Kleppjárnsreykir í Borgarfirði helgina 29.-31.ágúst n.k. Read More »

Fyrri ágústferð Félags húsbílaeigenda 15. – 17. ágúst 2014

Fyrri
ágústferð Félags húsbílaeigenda
15. – 17.
ágúst 2014
Hótel Eldborg
/ Laugargerðisskóli á Mýrum
Gestir okkar
félagar í danska húsbílafélaginu
Nokkrir félagar í Dansk autocamper forening,  sem
eru að ferðast hér um Ísland 16-17 bílar ætla að heiðra okkur með nærveru sinni
þessa helgi, hér fylgir dagskráin með,  við spilum þetta af fingrum fram
og vonum að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir svo við getum verið úti og
skapað skemmtielga stemmingu öll saman. Daði í skemmtinefndinni er búinn að
setja saman nokkra texta á íslensku og dönsku svo við getum sungið saman, hátt
og snjallt en hann er tengiliður við Danina.
*Dagskráin:
Föstudagur 15. ágúst
Útilegukortið gildir þarna, annars
kostar fyrir manninn 1.000 kr. pr. nótt og hver og einn greiðir fyrir sig hjá
staðarhaldara.  Af gefnu tilefni skal bent á að það er ekki losun fyrir
ferðasalerni á staðnum og með öllu ólíðandi að salerni séu losuð í salerni sem
ætluð eru almenningi.  Hér eru upplýsingar frá Umhverfisstofnun um
losunarstaði: http://www.ust.is/library/Skrar/Atvinnulif/Heilbrigdiseftirlit/adstada_ferdasalerni.pdf
Á staðnum er rafmagn en samt ekki
fyrir nærri alla og því vonumst við til þess að þeir sem verða að vera í
rafmagni hafi aðgang að þeirri þjónustu.  Það er sundlaug á staðnum,
aðgangseyri greiddur inn á Hóteli. Við gerum ráð fyrir að
föstudagurinn fari í að maður verði manns gaman og gefi sig á tal við gestina
okkar og myndi þannig góð kynni.
 
“Föstudagar eru sérstakir hattadagar og er félagsmönnum
uppálagt að ganga með hatta þá daga eða     fá á sig skömm
og hneisu, sem Skammari sér um að framfylgja á næsta
fundi/atburði á vegum félagsins.”
 
Laugardagur 16. ágúst
Kl. 12:00 Setning og kjötsúpa: Formaður félagsins Soffía Ólafsdóttir flytur
tölu og býður til Íslenskrar kjötsúpu.  Ef veður er gott þá getum við
stillt upp borðum og stólum utandyra og borðað saman. Hafið með ykkur
disk og skeið !
Súpan kemur frá veitingastaðnum Galitó á
Akranesi. 
Kl.13:00 – 14:00 Markaður
kl. 15:00 Landsleikur: Íslendingar og Danir keppa í Víkingaspili. Það lið sem
er undan að vinna einum leik meir en andstæðingurinn sigrar.
Eftir landsleikinn væri upplagt að hafa
opið hús í bílunum og bjóða gestunum upp á séríslenskt sælgæti: Tillaga:
(Kleinur og mjólk / flatköku með hangikjöti / pönnuköku með rjóma /harðfisk og
hákarl + brennivín eða bara hvað sem er svo ekki sé nú minnst á íslenska
lakkrísinn)
Kl. 18:00 Undirbúningur fyrir kvöldverð: Raða borðum og stólum upp utandyra
og hver og einn dekkar upp sitt borð, grillar og græjar sinn mat eins og hver
og einn vill hafa hann.
Kl. 19.00 Sameiginlegt borðhald:  Munið að danir sitja oft lengi við
matarbrðið og njóta.
Við höfum möguleika á að flytja borð og
stóla inn í hús ef okkur sýnist svo.
 Sunnudagur 17. ágúst
Þökkum gestum okkar fyrir
samveruna,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,Góða
ferð heim.
Félagar góðir,  prentið út
dagskrána og einnig söngtextana til að hafa með ykkur.  Eins og fram kemur
þarna efst í dagskránni þá er Útilegukortið á Eldborg og hver og einn greiðir
fyrir sig ef þið eruð ekki með útilegukortið þá kostar gjaldið 1.000,–kr. pr.
mann nóttin og munið að greiða hjá staðarhaldara og einnig minni ég ykkur á að
koma með klósettin ykkar tóm þar sem ekki er losunarstaða á Eldborg og við
látum það ekki spyrjast um okkur að við tæmum í almenningssalernin inni á
Eldborg, það bara má ekki.
 
Félagið býður upp á kjötsúpu í hádeginu
á laugardaginn  (hver og einn kemur með sinn disk og skeið) og  við
setjum upp markað og ef þið félagar góðir viljið vera með sölubás er það bara
alveg sjálfsagt,  við vonumst til að geta verið bara úti en það kemur bara
í ljós hvernig veðrið verður, höfum þá sal til að fara inn ef veðurguðirnir
verða ekki í stuði.
Nú er bara að rifja upp dönskuna svo við
getum spjallað við vini okkar eða æfa fingramálið, þetta verður bara gaman.
Gaman væri ef einhverjir kæmu með
eitthvað svona íslenskt til að bjóða gestum okkar og hvort öðru eins og kemur
þarna fram í dagskránni þetta skapar skemmtilega stemmingu og fær fólk til að
tala saman.
 
Hlökkum til að sjá ykkur.
Með bestu kveðjum
f.h. Stjórnar, ferða-og skemmtinefndar.
Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.

Fyrri ágústferð Félags húsbílaeigenda 15. – 17. ágúst 2014 Read More »

Tilboð til félagsmanna

Tilboð til félagsmanna:
Orkan tekur þátt í stóru ferðinni hjá Félagi húsbílaeigenda með því að gefa þeim sem eru með kort eða lykil frá Orkunni -12kr. afslátt af verði bensins eða olíu, dagana  11-20 júlí  Vonandi geta sem flestir nýtt sér þetta góða tilboð.  
 http://www.husbill.is/page/tilbod-til-felagsmanna

Tilboð til félagsmanna Read More »

Stóra-ferðinn

Kæru félagar.

Nú er komið að Stóru-ferðinni okkar sem verður farin um Suðurlandið og byrjar á Selfossi n.k. laugardag 11.júlí og endar að Mánagarði í Nesjahverfi skammt frá Höfn í Hornafirði.

Við vonumst til að sjá ykkur sem flest í þessari rúmlega vikuferð.  Margt er að skoða á þessari leið þó svo við höfum mörg okkar farið þarna oft þá er alltaf eitthvað nýtt að sjá og þið fáið í hendurnar góðan Leiðarvísir þar sem búið er að taka saman heilmikið efni um áhugaverða staði sem vert er að gefa gaum og þar í er einnig dagskráin fyrir alla dagana. Svo verður líka svo gaman að hittast á tjaldstæðunum og það er ýmislegt sem við gerum saman eins og dagskráin ber með sér sem fylgir hér með.

Vinaleikurinn sem hefur verið undanfarin 2-3ár verður áfram og kynntur á laugardagskvöldið ásamt nýjum leik „bjórleik“ þetta er spennandi og verður gaman að taka þátt í þessu.

Við vonum svo sannarlega að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir og sýni okkur sína bestu hlið sem sagt sól og blíðu en við mætum með sól í hjarta og sól í sinni.

Orkan kemur að ferð okkar með því að veita félögum í Félagi húsbílaeigenda -12kr. á lítrinn bensín/olía, frá föstudeginum 11.júlí og alla ferðina til 20.júlí,  endilega nýtið ykkur þetta tilboð.

Ég vil benda ykkur á tengla á heimasíðunni okkar sem þið ættuð að skoða það er fyrst til að nefna  „Sölusíðan“  „Auglýsendur“  allir þeir sem auglýsa hjá okkur, og svo,  „Tilboð til félagsmanna“ frá fyrirtækjum sem veita afslátt til félagsmanna  og svo fyrir okkur öll sem erum að ferðast vítt og breytt þá er tengill á sölusíðunni fyrir „Tjaldstæði“ en þar eru nokkuð mörg tjaldstæði sem veita félagsmönnum afslátt af gistingu.

Einnig hefur bæst við á „TENGLAR“  þar má sjá hvar er losunaraðstaða WC.  Hvar sundlaugar eru á landinu, og nýr vefur visitingIceland.is  o.m.fl.   tenglarnir eru í stafrófsröð, mikill fróðleikur þarna.  

Dagskrá Stóru-ferðar:

Föstudagur 11. júlí (dagur 1)

Tjaldstæðið á Selfossi, Gesthús. Munið að föstudagar eru hattadagar, ekki gleyma höttunum heima.!

Laugardagur 12. júlí (dagur 2)

Fólki er bent á að kynna sér söfn og aðra afþreyingu á Selfossi. Stutt er í alla þjónustu frá tjaldstæðinu.

Kl 09.45 lagt af stað fótgangandi (vegalengd c.a. 950m)

Kl. 10.00 Brunavarnir Árnessýslu bjóða húsbílaeigendum að skoða nýja Slökkvistöð, kynningu á

notkun slökkvitækja og einnig verður sýnt hvernig menn bera sig að við að klippa bíla. Áhugavert fyrir bæði konur og karla.

Brunavarnir bjóða upp á kaffisopa að lokinni kynningu. Slökkviliðstjórinn mun sýna myndir frá ýmsum tímum og viðburðum í sögu Selfoss og fylgja þeim eftir með skýringum.

Kl. 21.00  Soffía formaður setur ferðina og fyrirkomulag ferðarinnar kynnt.

Vinaleikur og bjórpottur:

Þeir sem ætla að taka þátt komi að Mánadísinni nr. 696,  eftir að Soffía hefur lokið máli sínu.Ef einhver sem getur ekki mætt fyrr en á sunnudegi-mánudegi og vill vera með í leiknum þá biðjið vini ykkar að draga fyrir ykkur vin og afhenda þeim gjafir.

Frekari upplýsingar um leikina er svo að finna í leiðarvísir sem þið fáið afhent hjá ferðanefnd þegar þið greiðið fyrir ferðina.

 

Sunnudagur 13. júlí (dagur 3)

Selfoss – Hamragarðar (71,7 km) Tjaldstæðið er rétt innan við Seljalandsfoss er við fossinn Gljúfrabúa.

Mánudagur 14. júlí (dagur 4) Vestmannaeyjaferð fyrir þá sem hafa þegar pantað.

Kl. 12.00 Rúta leggur af stað frá Hamragörðum að Landeyjarhöfn

Tilboð pr mann með Herjólfi fyrir farþega 16-66 ára kr. 2.080 á mann (verð 1.040 kr önnur leið)

Tilboð pr mann með Herjólfi fyrir farþega + 67 ára kr. 1.040 á mann (verð 520kr önnur leið)

Kl. 13.00 Brottför frá Landeyjahöfn með Herjólfi.

Eftir komuna til Eyja er skoðunarferð um Vestmannaeyjar í rútu, félagi okkar Guðmundur Karl nr. 266 verður leiðsögumaður (2-3 tíma) komið m.a. við hjá Grími kokk.

Frjáls tími í miðbæ Vestmannaeyja að lokinni skoðunarferð.

Kl. 17.00 Mæting í Herjólf og brottför 30 mín seinna. Rútan skilar okkur í Hamragarða.

Þriðjudagur 15. júlí (dagur 5)

Hamragarðar – Vik í Mýrdal (59,1 km)

Gist verður á tjaldstæðinu. Margir áhugaverðir staðir á leiðinni til að skoða, Skógarfoss – Minja og samgöngusafnið að Skógum – Gestastofan á Þorvaldseyri og Seljavallalaug, Dyrhólaey,margir hellar eru undir Eyjafjöllum sem vert er að gefa gaum.

kl. 20.30 Guðný Guðnad. mun ganga með okkur um Vík og segja okkur eitthvað markvert um staðinn, gaman væri að enda svo á einhverjum pöbb á Vík..

Miðvikudagur 16. júlí (dagur 6)

Vík í Mýrdal – Skaftafell (140 km)

Áhugaverðir staðir eru: Þakgil – Laufskálavarða – Hrífunes – Fjaðrárgljúfur – Systrastapi og Systrafoss –Kirkjugólfið – Foss á Síðu – Dverghamrar – Orrustuhóll – Núpstaður (ef hann er opinn ferðamönnum). Gist verður á tjaldstæðinu í Skaftafelli.

Kl. 20.30 Leikir: Hér vantar 4 í hvert lið – Ratleikur sem hefst við Bláa naglann nr 233. (Hafið með ykkur blýant/penna)

Fimmtudagur 17. júlí (dagur 7)

Í Skaftafelli eru ótal gönguleiðir og er bent sérstaklega á Svartafoss.

Kl. 19.00 Hér væri kjörið að raða borðum á einn stað og borða saman. Fróðleikur og bingó. Kl. 20.00 Kristján Benediktsson nr. 529 segir frá áhugaverðum stöðum af leiðinni sem ekin verður á morgun. Bingóspjöld seld fyrir og eftir mat. Glæsilegir vinningar.

Föstudagur 18. júlí (dagur 8)

Skaftafell – Mánagarður í Neshverfi (127 km)  Munið föstudagar eru hattadagar.

Helstu staðir á leiðinni eru: Jökulsárlón – Þórbergsetur – og munið að horfa á landslagið.

Kl. 21.00 Kvöldvaka í Mánagarði. Söngbókin tekin fram – Vinaleikur upplýstur – Útsvar

Allir að mæta með söngbækur og hljóðfæri. Leikin verður tónlist af hljómplötum fyrir þá sem vilja dansa fram til kl. 24.00 ef stemning er góð.

Laugardagur 19. júlí (dagur 9)

Kl. 12.00 Stillt upp fyrir markað.

Kl. 13.00 – 15.00 Markaður félagsmanna.

Eftir markaðinn röðum við borðum og stólum fyrir lokahófið.

Kl. 20.00 Lokahóf.

Hátíðarkvöldverður  Hlaðborð mjög góður, frá Hótel Höfn- Skemmtidagskrá – Bílahappadrætti – Ratleiksvinningur og dansleikur með         Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar.

Sunnudagur 20. júlí (dagur 10)

Takk fyrir samveruna og góða ferð heim eða áfram í fríið.

Njótum samverunnar, eigið öll góðar stundir.

Sjáumst f.h. Stjórnar, ferða-og skemmtinefndar

Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.

Stóra-ferðinn Read More »

Sólseturshátíðina í Garðinum

Ágætu félagar.  27.-29.júní  eða næstu helgi er 4. ferðin okkar   og er hún á Sólseturshátíðina  í Garðinum hátíðin er haldin út við Garðskagavita. Þegar við settum þessa ferð á í vetur voru upplýsingarnar sem við fengum þær að ekkert gjald yrði tekið á tjaldstæðinu enda á tjalda.is er tjaldstæðið auglýst frítt. Í síðustu viku heyrðum við af því að þeir sem sjá um hátíðina í ár ætli að rukka 2.000,–kr. pr. bíl  alla helgina með rafmagni óháð hvað margir eru í bílnum, svo heyrist núna að þetta eigi að vera 2.500,– kr. helgin en þetta er allt mjög óljóst sem er miður þar sem við höfum þá fengið rangar upplýsingar í byrjun. Ef af þessari gjaldtöku verður þá verður hver og einn að greiða fyrir sig að þessu sinni. Við látum dagskrána fylgja hér með og við vonumst til að sjá sem flesta í þessari ferð. 

f.h. Stjórnar,ferða-og skemmtinefndar.

Sof´fia G. Ólafsdóttir, formaður.

Sólseturshátíðina í Garðinum Read More »

Orkan afsláttur

Orkan tekur þátt í hvítasunnuferðinni hjá Félagi
húsbílaeigenda með því að gefa þeim sem eru með kort eða lykil frá Orkunni
-12kr. afslátt af verði bensins eða olíu, dagana 6.-9.júní n.k.
Vonandi geta sem flestir nýtt sér þetta góða tilboð. Eigið góða hvítasunnuhelgi

Orkan afsláttur Read More »

Hvítasunnuhelgin að Goðalandi 6.-9.júní 2014

Hvítasunnuhelgin að Goðalandi 6.-9.júní 2014
Hér kemur dagskrá helgarinnar, ef þið viljið hafa þetta í bílunum hjá ykkur þá endilega prentið þetta út, gott að geta fylgst með, því það er margt að gerast og við munum eftir fremsta megni fara eftir tímasetningunum eins og þær eru gefnar upp í dagskránni. Gjald er það sama og á s.l. ári . fyrir félagsmann 4.000 kr.18.ára og eldri Gestir greiði 5.000 kr. 18.ára og eldri
Hlökkum til að sjá ykkur. Sjáumst. Stjórn, ferða-og skemmtinefnd.
Dagskráin fyrir hvítasunnuhelgina
Reynum að byrja alla dagskrárliði stundvíslega !
Föstudagur 6. júní: 
Hattavinafélagið: Föstudagar eru sérstakir hattadagar og er félagsmönnum uppálagt að ganga með hatta þá daga að viðurlagðri skömm og hneisu, sem skammari sér um að framfylgja á næsta fundi/atburði á vegum félagsins.
 Ökuleikni: Fljótlega eftir að skemmtinefnd mætir á svæðið þá mun hefjast “Ökuleikniskeppni” 
1. Hver bíll byrjar með 300 stig. Aka upp á planka og nema staðar með hægra framhjól upp plötu og á miðja dekksins að vera á striki sem málað er á plötuna. 
2. Bakka síðan milli tveggja prika og nema staðar við prik sem staðett er 4 metrum frá. (bannað að nota bakkmyndavél) Til að fá fullt hús þarf bifreiðin að nema staðar 2 cm frá prikinu. Fari bifreið fram yfir þá tvöfaldast refsistigin.
3. Aka næst að priki sem er 50 cm hátt og nema staðar 2 cm frá prikinu. Fari bifreiðin of langt tvöfaldast refsistigin. 1 cm er 1 stig.                             
 Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin verða afhent í lokaferð 27. september í Árnesi.
17:00  *Stilla upp í Félagsheimilinu fyrir kvöldskemmtun*
21.00-01:00 Hátíðin sett og sungið upp úr söngbókinni. Muna að taka hana með !!!
Félagar hvattir til að taka með sér hljóðæri og spila með. Í lokin verða leikin danslög af hljómplötum og þar koma línudansarar sterkir inn                                    
Laugardagur 7. júní: 
12:00 *Félagsheimilið opnað fyrir markaðsundirbúning*
13:00-14:00  Hestamenn frá Miðhúsum teyma hesta sína undir börnum
13.00–15.00  Markaður í Félagsheimilinu 
15:00 Börnin horfa til himins !  
15:00 Forsala á Bingó- spjöldum   *Stilla upp fyrir bingó*
15:30    Bingó, margir góðir vinningar *Stilla upp fyrir dansleik*
22.00–02:00 Hljómsveitin Sófar leikur fyrir dansi
Sunnudagur 8. júní: (Hvítasunnudagur)
12:30 *Stilla upp fyrir félagsvist*
13:00  Félagsvist   *Eftir félagsvist: Stilla upp fyrir kaffið*
15:00  Hvítasunnukaffi í boði félagsins.  
16:30  *Stilla upp fyrir ball*
21:00  John töframaður sýnir listir sínar. Hæfileikakeppni, Verðlaunaafhending, 
 Sungið upp úr söngbókinni. Útsvar, Félagsmenn hvattir til að koma með hljóðfærin sín  og spila saman.
 Danslög leikin af hljómplötum 
Mánudagur 9. júní: (Annar í Hvítasunnu)
12:00  *Hjálpa til við frágang í Félagsheimili* 
 Vonandi skemmtu sér allir vel.
 Góða ferð heim !
Skemmtinefnd hvetur félagsmenn til að versla við eftirtalda aðila sem gefa vinninga í ferðir félagsins í sumar.
Víkurverk, Rafgeymsalan,Orka, Bílaraf, Atlantsolía, Olís, N1,Orkan,skeljungur, Góa, Borgarleikhúsið, Ás styrktarfélag , Askur, KFC, Fjörukráin, Gamlavínhúsið, Ólafur Gíslasson, Ullmax, Automatic, Laxnes horse, Brammer, Málningarvörur, Wurth, Pólýhúðun,

Hvítasunnuhelgin að Goðalandi 6.-9.júní 2014 Read More »

Lokaferðin sem jafnframt er Árshátíð félagsins verður í Félagsheimilinu Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Lokaferðin sem jafnframt er Árshátíð félagsins verður í Félagsheimilinu Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 99 km frá Reykjavík. Unnið er að undirbúningi þessarar ferðar og er ykkur alveg óhætt að láta ykkur hlakka til.Eins og Daði, Elín, Einar og Dóra sögðu á ferðafundinum þá eru þau að safna vinningum í ferðirnar okkar og einnig að brydda upp á ýmsum nýjungum s.s. hæfileikakeppni, akstursleikni í bland við „útsvarið“ kubbaspilið, bingó, spilavist, bridge sem hefur verið hjá okkur en þetta byggist líka á að við tökum öll þátt í því að gera öll eitthvað saman, hafa „GAMAN SAMAN“ . Ég minni ykkur á að skrá ykkur í hæfileikakeppnina, útsvarið og akstursleiknina hjá skemmtinefndinni, koma svo gott fólk.

Lokaferðin sem jafnframt er Árshátíð félagsins verður í Félagsheimilinu Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Read More »

12.-14.sept. Varmaland; Furðufata/Grímuball

12.-14.sept. Varmaland; Furðufata/Grímuball
jibbí, nú skuluð þið fara að undirbúa gerfið!!!, þarna er Útilegukortið og gerir fólk sjálft upp við staðarhaldara, annars er gjaldið 600,– kr. pr. mann pr. Nótt en rafmagn er 1.500,– kr. á sólarhring. Þarna erum við með hús og einnig verður ball á laugardagskvöldinu, félögunum að kostnaðarlausu.

12.-14.sept. Varmaland; Furðufata/Grímuball Read More »