Ný stjórn og nefndir.

Nýja stjórn skipa:

Anna Pála Magnúsdóttir nr 595 Formaður

Katrín B Baldvinsdóttir nr 468 Varaformaður

Sigurbjörg Einarsdóttir nr 377 Gjaldkeri

Ágústa B Hálfdanardóttir nr 696 Ritari

Herdís Halldórsdóttir nr 312 Vararitari

Absalon Poulsen nr 390 og Sigtryggur Hafsteinsson nr 40 eru meðstjórnendur.

Ferðanefnd skipa:

Ásgeir M  Hjálmarsson nr 712 Formaður.

Árni Óskarsson nr 65

Ingibjörg Jónatansdóttir nr 799

Ásgerður Ásta Magnúsdóttir nr 501

 Skemmtinefnd skipa:

Árni Björnsson nr 383

Ingibjörg Þorláksdóttir nr 695

Nína Dóra Pétursdóttir nr 460

Enn vantar einn meðlim.

 Skoðunarmenn reikninga:

Erla Skarphéðinsdóttir nr 568

Hjördís Þorsteinsdóttir nr 337

Björn Þorbjörnsson nr 10 til vara.

 Umsjón vefsíðu:

Anna M Hálfdanardóttir nr 165

Ný stjórn og nefndir. Read More »

AÐALFUNDUR FÉLAGS HÚSBÍLAEIGENDA;

AÐALFUNDUR FÉLAGS HÚSBÍLAEIGENDA;
verður haldinn 11.okt. 2014 kl. 14.00  í sal Grunnskólans í
Garði.
 Dagskrá aðalfundar:

1) Formaður setur fundinn og gerir tillögu um fundarstjóra.
2) Fundarstjóri gerir tillögu um fundarritara og kynnir dagskrá
fundarins.
3) Formaður flytur skýrslu stjórnar.
4) Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
5) Umræður um skýrslu formanns og reikninga félagsins
6) Ákvörðun félagsgjalda.
7. Lagabreytingar.
8. Kosningar í stjórn og nefndir.
9. Önnur mál
 Lög félags húsbílaeigenda

 Tillaga að breytingum á tveimur liðum í 9 gr. laga d) og e) liðum

 d) Fjórir félagar að minnsta kosti skulu kosnir í skemmtinefnd til 1 árs í senn, hér verði breyting „til 2ja ára í senn“

 e)Fjórir skulu kosnir í ferðanefnd til 1 árs í senn. 

Að auki situr í henni einn stjórnarmaður, hér verði breyting „til 2ja ára í senn“ annað óbreytt.

 Fara úr 1 ári í 2 ár í báðum þessum liðum. Þar sem verið er að breyta þessum liðum

þá setjum við ákvæði til bráðabirgða sem gildir fram að næsta aðalfundi, eftir það verðu ávallt kosið til 2ja ára

í skemmti- og ferðanefnd.
 Ákvæði til bráðabirgða.

Á aðalfundi félagsins 2014 skal kjósa 2 félaga til 1 árs í ferða-og skemmtinefnd og 2 félaga til 2ja ára í ferða-og skemmtinefnd.

 Ákvæði þetta fellur úr gildi fyrir næsta aðalfund, og skal frá 2015 kjósa til 2ja ára í senn í báðar þessar nefndir

 Kaffiveitingarað fundi loknum.  Vonumst til að sjá ykkur sem flest.

F.h. Stjórnar, ferða-ogskemmtinefndar
Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.

AÐALFUNDUR FÉLAGS HÚSBÍLAEIGENDA; Read More »

Aðalfundurinn laugardaginn 11.okt. n.k. kl. 14:00

Kæru félagar. 
 Ég vil þakka öllum þeim em komu í Lokaferðina/Árshátíðina
að Árnesi kærlega fyrir samveruna, þetta var frábær helgi sem tókst vel í alla
staði, þökk sé ykkur félagar. Eins vil ég þakka öllu því duglega fólki sem er í
stjórn, ferða- og skemmtinefnd og hefur unnið gífurlega gott starf til að láta allt
ganga upp í þessari ferð og í allt sumar, hafið þökk fyrir ykkar störf.

 Nú ættu allir að vera búnir að fá fréttabréf september í
hendurnar en þar er t.d. auglýstur aðalfundur félagsins og breyting á tveimur
liðum í 9.gr. laga félagsins d-lið og e-lið, sjá fréttabréf.

 Aðalfundurinn er laugardaginn 11.okt. n.k. kl. 14.00
(ath. tíminn datt niður í fundarboðinu sem fylgdi fréttabréfinu en minnst er á
aðalfundinn í miðju bréfsins og þar er tíminn tilgreindur) fundurinn verður
haldinn í sal Gerðaskóla, Miðgarði,  í
Garði. Kaffiveitingar að fundi loknum.

Ef veðrið verður gott er tilvalið að koma á húsbílunum,
það er tjaldstæði við Íþróttahúsið og eitthvaðer af rafmagni þar og svo er líka
hægt að vera út við Garðskaga.
 Úr stjórn hverfa núna Soffía G. Ólafsdóttir formaður, nr.
24  Páll Þorsteinsson, varaformaður,nr.
377 Ragna Helgadóttir, ritari, nr. 202 Hlíðar Sæmundsson, varamaður,nr. 2.

 Þegar þetta er skrifað hafa gefið kost á sér í stjórn
Anna Pálína Magnúsdóttir til formanns, nr. 595, Ágústa Hálfdánardóttir, nr.696,
Sigurbjörg Einarsdóttir, nr.377, Herdís Halldórsdóttir nr. 312, Sigtryggur
Hafsteinsson, nr. 40.  Úr ferðanefnd hverfa Anna M. Hálfdánardóttir nr. 165,
Hrafnhildur Ó. Sigurðardóttir nr. 698.  Eftirtaldir aðilar bjóða sig fram í ferðanefnd Ásgeir M.
Hjálmarsson nr. 712, Árni Óskarsson nr. 65, Ingibjörg Jónatansdóttir nr. 799,
Ásgerður Ása Magnúsdóttir, nr. 501. Úr skemmtinefnd hverfa þau fjögur seem hafa skipað hana
s.l. ár þau Elín Íris Jónasdóttir og Daði Þór Einarsson nr. 233, Halldóra
Gunnarsdóttir og Einar V. Guðnason nr. 392

 Í skemmtinefnd hefur boðið sig fram Árni Björnsson, nr.
383 og enn vantar 3 aðila til að vera í skemmtinefndinni, ég vona að einhver í
félaginu sjái sér fært að koma í skemmtinefndina, hafið samband við formann sem
fyrst.

 Sjáumst sem flest á aðalfundinum

 Með bestu kveðjum f.h. stjórnar, ferða-og skemmtinefndar
Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.

   

Aðalfundurinn laugardaginn 11.okt. n.k. kl. 14:00 Read More »

Dagskrá Árnes

Lokaferð og árshátíð Árneso 26. – 28. september 2014
Föstudagur 26. september “heimskur er hattlaus maður””Föstudagar eru sérstakir hattadagar og er félagsmönnum uppálagt að ganga með hatt þá daga að viðlagðri skömm og hneisu, sem skammari sér um að framfylgja á næsta fundi/viðburði á vegum félagsins”

Kl. 21.00 Lokakeppnin í Útsvari – kíkt í söngbókina og þeir sem eru í stuði þenja hljóðfærin sín.Liðin sem keppa til úrslita í Útsvari eru: Ferðanefndin og Hlíðar og co. Félagar hvattir til að koma með hljóðfæri spila undir söng úr söngbók félagsins. Happadrættismiðar verða til sölu hjá skemmtinefnd. Glæsilegir vinningar og aðeins dregið úr seldum miðum. Upplag miða er 400 og kostar miðinn 200 kr (fyrir 1000 kr er hægt að fá 5 miða) Andvirði vinninga eru um 250.000 kr.
Laugardagur 27. september Kl. 10.00 – 18.00. Neslaug opin.Um Árnes: Árnes er eyja í Þjórsá. Af henni er nafn sýslunnar dregið, Árnessýsla. Í eyjunni er talið að þingstaður Árnesinga hafi verið að fornu enda sér þar mannvirki sem benda til dómhrings. Þar eru og klettaborgir sem heita Gálgaklettar og bendir nafnið til aftökustaðar. Þinghóll er þar einnig.Austan við Árnes fellur Árneskvísl, vatnslítil. Í henni er Hestafoss. Megináin fellur að vestanverðu. Í henni er Búði eða Búðafoss við efsta horn Árnessins, í honum er laxastigi. Við hann, vestan ár, eru margar búðatóttir og hefur þar sýnilega lengi verið þingstaður fyrrum.Allar líkur benda til að Árnes hafi fyrrum verið fast við vesturlandið en Þjórsá síðan brotist fyrir vestan það og þá skilið að þingstaðinn með dómhringum og búðirnar. Allar minjar þar eru friðlýstar. Félagsheimilið Árnes í Skeiða- og Gnúpverjahreppi dregur nafn sitt af eyjunni.Heimild: Íslandshandbókin útgáfa 1995.
Kl. 19.00 Félagsheimilið opnar með fordrykk í boði félagsinsKl. 20.00 Þriggja rétta hátíðarkvöldverður og skemmtidagskrá.Veitt verða verðlaun fyrir Útsvar og samanlagða félagsvist sumarsins.Dregið verður í happadrætti.Jógvan Hansen og Friðrik Ómar skemmta.Annáll – Söngur – Gedduverðlaun. Hljómsveitin Karma leikur fyrir dansi til kl. 02.00
Sunnudagur 28. september*Kl. 12.00 Hjálpumst við frágang í Félagsheimilinu og muna að skrifa í gestabókina.Skemmtinefnd áskilur sér rétt til að breyta dagskránni sjái hún ástæðu til !

Dagskrá Árnes Read More »

Árshátíð/Lokaferð:

Árshátíð/Lokaferð:

Ætlar þú/þið ekki að koma á Árshátíðina/Lokaferðina  helgina 26.-28.sept. n.k.  að Árnesi, skráning stendur yfir til 22.sept. n.k. þar sem við verður að gefa upp fjöldann vegna matarins. 

Verð fyrir félagsmenn er 7.000,– kr. pr. mann það má bjóða gestum með sér og greiða þeir 9.000,– kr. pr. mann. Á föstudeginum verður dagskrá og m.a. verður lokakeppnin  í útsvari og margt margt fleira og við syngjum og tröllum saman. Laugardagur það verður
enginn markaður frjáls tími um að
gera að nýta sér sundlaugina sem er opin, fara í léttan göngutúr eða bara slaka
á fyrir kvöldið, njóta sín hátíðardagskrá  byrjar svo kl. 19.00 með fordrykk, 3ja rétta kvöldverður, skemmtidagskrá og dúndrandi ball með Ólafi Þórarinssyni (Labba í Mánum) og félögum hans og við dönsum botninn úr skónum.

Fjölmennum í síðustu útilegu sumarins.

Sjáumst hress og kát.

 Kv.,Soffía

Árshátíð/Lokaferð: Read More »

Árshátíð/Lokaferð 26.-28.sept. n.k. að Árnesi í Skeiða-og Gnjúpverjahreppi.

Nú er komið að því að fólk þarf að skrá sig á Árshátíðina/Lokaferðina sem er síðari haustferðin okkar.

Dagskráin mun koma inn á heimasíðuna innan tíðar en föstudagskvöldinu verður ýmislegt til skemmtunar s.s. lokakeppnin  í útsvarinu, söngur glens og gaman.

Laugardagskvöldið okkar mun byrja á fordrykk kl. 19.00 og boðið er upp á þriggja rétta máltíð, forréttur, aðalréttur og kaffi og konfekt. Vegleg skemmtidagskrá og Hljómsveit Ólafs Þórarinssonar (Labbi í Mánum) þeir eru 4, spilar fyrir dansi til kl. 02.00 eftir miðnætti. 

Miðaverð er kr. 7.000,– pr. mann það má taka með sér gesti verð fyrir þá er 9.000,–pr. mann, Þið getið sent tölvupóst á husbill@husbill.is og pantað eða hringt í 896-5057,  þið leggið svo inn á reikning félagsins  0542-26-276 kt. 681290-1099  og látið koma fram kennitölu þess sem leggur inn.

Nú er um að gera að panta sem fyrst, því við verðum að vita hvað margir ætla að koma út af matnum, skráningu lýkur 22.sept. n.k. 

Nú er bara að ákveða sig og skrá. 

Nú fjölmennum við á árshátíðina og gleðjumst saman í síðustu ferð félagsins þetta árið. 

Stjórn, ferða-og skemmtinefnd.   

Árshátíð/Lokaferð 26.-28.sept. n.k. að Árnesi í Skeiða-og Gnjúpverjahreppi. Read More »

Varmaland í Borgarfirði 12.-14.sept n.k.

Ágætu félagar. 

Þá er komið að fyrri september ferð félagsins að Varmalandi í Borgarfirði 12.-14.sept. 2014, sem er Futðufata-/Grímubúninga helgi og verður gaman að sjá allar furðuverurnar sem munu mæta á staðinn. Munið að það er ekki skilda að mæta í búning, það gerir hver og einn sem hann langar til í þessum efnum, þannig hefur það verið undanfarin ár og allir skemmt sér sem best.

Við verðum á tjaldstæðinu á Varmalandi en útilegukortið gildir ekki þessa helgi þar sem við teljumst hópur. Verð fyrir helgina er kr. 2.000,– pr. mann og mun ferðanefndin sjá um gjaldtöku og við viljum beina því til ykkar kæru félagar að vera með gjaldið ákkúrat og eins væri gott að þið snérið ykkur strax við komuna á tjaldstæðið til ferðanefndarinnar en þau klæðast gulum vestum og eru því auðþekkjanleg. Rafmagn er á tjaldstæðinu og kostar 900,–kr. fyrir sólahringinn  og þeir sem taka rafmagn greiða það beint til staðarhaldara.

Við verðum með sal í skólanum að Varmalandi báða dagana og er ýmislegt til skemmtunar, eins og sjá má á dagskránni, endilega prentið hana út fyrir ykkur.

Nú er bara að vona að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir og hætti þessari rigningu og að vindurinn fari hægt yfir.

Við vonum að sem flestir láti sjá sig og við munum eiga góða helgi saman.

Með húsbílakveðju

f.h. Stjórnar, ferða-og skemmtinefndar

Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.

Varmaland í Borgarfirði 12.-14.sept n.k. Read More »