Árshátíðin

Árshátíðin verður síðan haldin  15. – 17. okt. 2010.Stjórn, ferðanefnd og skemmtinefnd voru sammála um það að halda árshátíðina á hóteli í ár, og verður hún haldin 15. -17. okt. næstkomandi, að Hótel Hvolsvelli.Verðin eru sem hér segir:Hjón 2 nætur, ásamt kvöldverði á laugardagskvöldinu, skemmtun og dansleik kr. 25,800.-(Ath! ekki matur innifalinn á föstudagsköldinu)
Hjón 1 nótt, ásamt kvöldverði á laugardagskvöldi, skemmtun og dansleik  kr. 19,800.-Einstaklingur 2 nætur, ásamt kvöldverði á laugardagskvöldi, skemmtun og dansleik kr. 15,400.-(Ath. ekki matur innifalinn á föstudagskvöldi)Einstaklingur 1 nótt, ásamt kvöldverði á laugardagsköldi, skemmtun og dansleik, kr. 11.400,-Miði á árshátíðina laugardagskvöld,  kvöldverður, skemmtun og dansleikur,  kr. 5,000.- pr. mann  þ.e hjón kr. 10,000.-Nú er um að gera að panta ágætu félagar, og taka þátt í stórglæsilegri árshátíð, endilega hafið samband með tölvupósti  husbill@husbill.is eða hringið í síma félagsins 896-5057, gott að fá sem fyrst fjöldann sem ætlar að koma.Dagskráin verður auglýst síðar en skemmtinefndin er á fullu að vinna í þessum málum og hefur mikinn metnað eins og hún hefur sýnt í sumar.Í lokaferðinni að Borg í Grímsnesi þ. 24. – 26. sept. n.k. verðum við með posann svo þeir sem vilja geta greitt þar.
Með bestu kveðjum f.h. stjórnar og nefnda, Soffía  G. Ólafsdóttir, formaður.

Árshátíðin Read More »

Aðalfundurinn

FUNDARBOÐ – AÐALFUNDURAðalfundur Félags húsbílaeigenda verður haldinn 9. okt. n.k. kl. 14.00, í veislusal Knattspyrnufélagsins Vals, að Hlíðarenda. Dagskrá fundarins:

Formaður setur fundinn og tilnefnir  fundarstjóra.
Fundarstjóri tilnefnir fundarritara.
Fundarstjóri kynnir dagskrá fundarins.
Formaður flytur skýrslu stjórnar.
Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
Umræður um skýrslu formanns og reikninga félagsins.
Kaffihlé.
Ákvörðun félagsgjalda.
Kosningar í stjórn og nefndir.
Lagabreytingar.
Önnur mál.

Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna!
Ath! Þegar síðasta fréttabréfið fór út þá vantað fólk í ferðanefnd og skemmtinefnd og okkur hefur borist liðsauki Oddný Jónsdóttir nr. 484 gefur kost á sér í ferðanefnd og Úlfhildur Geirsdóttir og Sigvaldi Haraldsson nr. 400 gefa kost á sér í skemmtinefnd.Þá lítur þettasvona út.
Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins:

Soffía G. Ólafsdóttir nr. 24, gefur kost á sér til formanns í félaginu, næstu 2 ár. Aðrir sem gefa kost á sér í stjórn eru:
Reynir Gunnarsson nr. 786,
Guðbjörg Bjarnadóttir nr. 75,
Benedikta Benediktsdóttir nr. 60,
Hlíðar Sæmundsson nr. 2,
Ragna Helgadóttir, nr. 202,
Páll Þorsteinsson nr. 377. 

Í ferðanefnd bjóða sig fram:

 Anna M. Hálfdánardóttir nr. 165,
Sævar Gunnlaugsson nr. 421,
Ásgeir M. Hjálmarsson nr. 712
Oddný Jónsdóttir nr. 484

Í skemmtinefnd félagsins bjóða sig fram:

Elín Íris Jónasdóttir og Daði Þór Einarsson nr. 39
Halldóra M. Gunnarsdóttir og Einar V. Guðnason nr. 392.
Úlfhildur Geirsdóttir og Sigvali Haraldsson nr. 400

Sem skoðunarmenn reikninga bjóða sig fram:

Erla Skarphéðinsdóttir nr. 568,
Hjördís Þorsteinsdóttir nr. 337
Björn Þorbjörnsson nr. 10.

Hlökkum til að hitta ykkur á Aðalfundinum á laugardaginn, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.

Aðalfundurinn Read More »

Ferðafundurinn – dagskrá

Ágætu félagar, næstkomandi laugardag, 20. mars er ferðafundurinn í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ og hefst hann kl. 14.00. Við fáum nokkra góða gesti í heimsókn og svo verða ferðir sumarsins kynntar og er mjög spennandi að sjá hvert farið verður.
Ef komið er frá Reykjavík þá skal taka þriðju akbraut í hringtorginu, sem er við enda Úlfarsfells, inn á veg sem heitir Baugshlíð og í öðru hringtorgi fyrstu akbraut til hægri við sundlaugina og þar ertu kominn inn á planið við Lágafellsskóla.  Skólinn er við enda sundlaugarinnar.  Lágafellsskóli er í þeim enda bæjarins sem er næst Reykjavík. Við vonumst til að  sjá ykkur sem flest. –  Nánar: SKOÐA Á KORTI

Ferðafundurinn – dagskrá Read More »

Óvissuferð

Óvissuferðin 27. feb. 2010(Það kostar 2.500 kr. pr. mann í þessa ferð.)Rútan er frá Selfossi og byrjar þar af leiðandi þar.Kl. 11.00 Selfoss—FossnestiKl. 11.10 Hveragerði- N1 planiðKl. 12.30 Reykjavík—Hús verslunarinnar (á planinu þar)Kl. 12.45 Hafnarfjörður—HafnarfjarðarkirkjaKl. 13.15 stoppað við hringtorgið sem liggur til Grindavíkur (Grindvíkingar komi upp á hringtorgið á Reykjanesbraut)Kl. 13.30 Reykjanesbær—planið við  88-húsið.Þetta eru staðirnir sem fólk er pikkað upp í rútuna.Akurnesingar—Borgnesingar og fólk vestar, ásamt  fólki af Kjalarnesinu og Mosfellsbæ sem hafa áhuga á að koma í óvissuferðina komi á planið hjá Húsi Verslunarinnar.Félagar úr Garðinum og Sandgerði komi á planið við 88-húsið í Reykjanesbæ.Ef einhverjir úr Vogunum á Vatnsleysuströnd vilja koma í Óvissuferðina þá væri hægt að pikka þá upp við hringtorgið sem liggur niður í Voga, það væri þá rétt áður en fólkið frá Grindavík er pikkað upp í rútuna.
Boðið veður uppá kaffi og gott meðlæti í feðinni og er áætlað að  ferð ljúki um kl. 18.00
Það er nú þegar farið að bóka í ferðina og nú er um að gera að drífa sig að skrá sig, það eina sem ég fæ  að vita er að það verður ekki farið með fólk í gönguferð.Skráið ykkur inn á gestabókina, eða sendið á netfangið husbill@husbill.is eða hringið í síma 896-5057

Óvissuferð Read More »

Lokasendingin?

Sendi Stefnumönnum, vonandi, síðasta stóra listann með breytingum og fórum við Robbi samhliða yfir breytingarnar. Í raun og veru er fátt eftir
nema að lagfæra spjallborðið og notendaviðmótið, en við ætlum okkur að vera með einfalt spjallborð á þessum vef okkar og
þannig vonandi geta

Lokasendingin? Read More »