Frá formanni
Góðan dag kæru félagar.
Vel var mætt til vina fundar:
Þá er ferðafundur afstaðin og öll sem þangað mættu orðin vel upplýst um ferðaplön félagsins. Það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa til fundarins er þakklæti. Þakklæti fyrir frábæra mætingu og jákvætt viðmót allra sem mættu. Okkur í stjórn og nefndum var full ljóst að tímasetningin gæti orkað tvímælis. Það er ekki amalegt veganesti fyrir nýjan formann, stjórn og nefndir að hafa fundið þá hlýju og meðbyr sem okkur var sýndur þar. Nú á fundinum var farið vítt og breytt þó hann sé fyrst og fremst ferðafundur félagsins.