Stóra ferð Félags húsbílaeigenda.
14. – 23. júlí 2017.
Dagskrá.
Ferðin hefst á tjaldstæðinu á Hvolsvelli og endar á Fljótsdalsgrund. Leiðin upp á Kárahnjúka.
Frjáls brottfarartími er alla ferðina og því kjörið að kynna sér handbókina og skoða sig vel um á leiðinni milli staða.
Ferðin kostar 7.000 kr. 14-18 ára greiða 4.000 kr. Gestir greiða 8.000 kr.
Við ætlum að hafa það þannig í þessari ferð, að hver félagsmaður greiðir fyrir tjaldstæði hjá staðarhaldara á öllum viðkomustöðum nema Fljótsdalsgrund.
Félagið greiðir þar allan kostnað á Fljótsdalsgrundinni, það er að segja gistingu, gistnáttaskatt, húsaleigu, hljómsveit og hátíðarmat. Svo annan kostnað sem til fellur eins og barmmerki, ferðabækling og fl.