admin

Fréttabréf júní mánaðar

Var að henda inn fréttabréfi júní mánaðar, og eins hefur þeim félagsmönnum, sem gefið hafa upp e-mail addressur, verið sent fréttabréfið í vefpósti. Svo bætast alltaf við auglýsingar á sölusíðuna reglulega svo endilega verið dugleg að kíkja inn. Minni einnig á það að láta vita ef auglýsinga er ekki lengur þörf. Hjálpumst að við að halda sölusíðunni réttri. Þannig helst hún virk og þjónar okkur bezt.

Fréttabréf júní mánaðar Read More »

Grandavör í Hallgeirsey 18. – 20. júní

Þá er komið að næstu ferð sem er helgin 18. – 20. júní hún er á tjaldstæðið Grandavör í Hallgeirsey í Austur-Landeyum. Eins og er hefur ekki komið aska þangað en ef  vindáttir breytast, þá er ferðanefnd með plan B og mun það koma inn á netið n.k. þriðjudag 15.  júní og bið ég ykkur öll um að fylgjast með því þar, og þið sem eruð nettengd að láta vini sem ekki hafa netfang vita ef  breytingar verða.

Grandavör í Hallgeirsey 18. – 20. júní Read More »

Stóra ferðin 10. – 18. júlí

Stóra ferðin  hefst 10. júlí og stendur til og með 18. júlí og er farið um Austurland. Ferðin hefst formlega í Freysnesi í Öræfasveit.

Dagur 1 = Lau – Freysnes Öræfasveit, ca. 3 km. austan v/Skaftafell. – Ferðin sett kl. 21:00

Dagur 2 = Sun – Freysnes – Höfn Hornafirði 165 km. Frjáls brottfarartími

Dagur 3 = Mán – Höfn – Breiðdalsvík, 165 km. Frjáls bottfarartími – Gönguferð um kvöldið ef veður leyfir.

Dagur 4 = Þriðj – Breiðdalsvík – Reyðarfjörður 64 km. Kvöldið er frjálst.

Dagur 5 = Miðv – Rútuferð til Eskifjarðar og Norðfjarðar fyrir þá sem kjósa. Álverið síðan skoðað.

Dagur 6 = Fimt – Reyðarfjörður  – Svartiskógur 103 km. Frjáls brottfarartími.

Dagur 7 = Föst – Svartisk. – Hjaltalundur. 48 km.  Ekið um Lagarfossvirkjun. Félagsheimili og tjaldstæði

Dagur 8 = Lau – Hjaltalundur – Hver sér um mat fyrir sig og sína – Stórdansleikur um kvöldið(Dagur 9 = Sun – FERÐ LOKIÐ – HEIMFERÐ)

Stóra ferðin 10. – 18. júlí Read More »

Þá er komið að 3. ferð félagsins að Hallgeirsey

Ágætu félagar. Þá er komið að 3. ferð félagsins þ. 18. júní -20. júní að Hallgeirsey, tjaldstæðið Grandavör, ekið niður með Þverá og farið í gegnum Vestur Landeyjar. Það hefur engin aska fallið á þessu svæði og spáin er alveg þokkaleg. Félagar sem greitt hafa árgjaldið 2010 greiða 1.000 kr. á bíl fyrir helgina, frá föstudegi til sunnudags.

Þá er komið að 3. ferð félagsins að Hallgeirsey Read More »

Meira um Stóru Ferðina…

Kæru félagar. Nú eru aðeins 4 dagar þar til Stóra ferðin hefst eða n.k. laugardag 10. júlí, að Freysnesi. Við höfum frétt að nokkrir félagar séu lagðir af stað og enn aðrir eru að fara á miðvikudag,  fimmtudag og föstudag. Það er spáð roki í nótt sem á að ganga yfir á morgun svo hugið vel  að veðrinu ágætu félagar og teflið ekki í neina tvísýnu þetta gengur fljótt yfir. Það er margt að skoða á þessari leið  sem við

Meira um Stóru Ferðina… Read More »

Ágústferðin í Logaland

Ágústferðinnni, sem er gjaldfrí fyrir alla þá félaga sem greitt hafa árgjaldið fyrir 2010, er heitið að Logalandi í Borgarfirði. Ferðin er helgina 20. – 22. ágúst. Að Logalandi erum við svo heppin að hafa hús til afnota og hvetjum við félagsmenn til að nýta sér þá aðstöðu sem við höfum aðgang að. Skemmtinefndin ætlar að treysta því að félagar verði duglegir að skemmta sér sjálfir og nefndin ætlar að njósna um félagana og sjá hvernig tekst til.

Ágústferðin í Logaland Read More »

Vegvísir í Logaland og fl.

Rata ekki allir að Logalandi í Reykholtsdal? Fyrir þá sem koma að sunnan þá akið þið eins og þið ætlið norður í land, en rétt áður en þið komið að brúnni hjá Borgarnesi þá beygið þið til hægri, inn á Borgarfjarðarbraut vegur nr. 50, og akið eins og þið ætlið til Húsafells, farið í gegnum húsaþyrpingu sem heitir Kleppsjárnsreykir, beygið svo til hægri áður en þið farið yfir brúna á Reykjadalsá, og þá blasir félagsheimilið við ykkur. Þeir sem koma norðan megin þá beygið þið inn á Borgarfjarðarbrautina veg nr. 50 (vegurinn er líka nr. 50 þarna sami vegurinn) og keyrið eins og þið ætlið í Reykholt, en þeir sem koma þarna megin fara yfir brúna (Reykjadalsá) og beygið til vinstri…. Vona að þetta sé sæmilega skýrt!
Svo var verið að setja inn myndir frá ferðum sumarsins, og alltaf eru einhverjar breytingar og nýjar auglýsingar á sölusíðunni. – Kv. Netstjórinn.

Vegvísir í Logaland og fl. Read More »