admin

Smá beiðni fyrir helgina

Ágætu félagar, við í ferðanefnd beinum þeim tilmælum til allra að hafa gjaldið fyrir helgina tilbúið,  þegar við förum að rukka, það munar svo miklu að þurfa ekki að gefa til baka eða nota posann,  það myndi flýta svo fyrir afgreiðslu hjá okkur. Sjáumst sem flest.Með bestu kveðju, Páll, Anna, Dói & Sævar.

Smá beiðni fyrir helgina Read More »

Óvissuferð

Þar sem við þurfum að vita hversu margir ætla að koma með,  þá þarf fólk að tilkynna þátttöku eigi síðar en 25.  feb. n.k. Þeir sem ekki skrá sig, komast ekki í ferðina. Við byrjum á því að “pikka” fólk upp í sem hér segir:Keflavík, mæting kl. 10.00  við 88 húsið, Hafnargötu 88. Grindavíkurafleggjari 10.15, Vogaafleggjari 10.20.Hafnarfjörður – við Þjóðkirkjuna við Strandgötu í Hafnarfirði kl.10.50. Reykjavík / Suðurland;  þar mætir fólk við Grand-hótel  kl. 11.20 á bílastæðinu þar sem Blómaval var og þangað koma Sunnlendingarnir líka nema það verði svo margt að þá er hugmynd að taka aðra rútu sem kemur frá Selfossi og tæki þá Sunnlendingana en þetta vitum við ekki fyrr en skránig hefst.Mosfellingar og þeir sem eru þar í grennd mæti á  planið hjá KFC  kl. 11.50Akurnesingar mæta á planið við Hvalfjarðargöngin (sín megin) kl. 12.30 og Borgfirðingar og aðrir að vestan mæti við Borgarfjarðarbrúna, við gatnamótin þar  kl. 12.50
Þetta verður mjög skemmtileg og fræðandi ferð og við hvetjum ykkur að taka þátt og sendið skráningu á husbill@husbill.is  eða hringið í Soffíu 896-5057 eða Sævar 898-5920 og tilkynnið þáttöku og á hvaða stöðum þið ætlið að vera. Fylgist svo vel með á heimasíðunni  ef áfangastöðum verður eitthvað breytt  og við munum líka lofa ykkur að fylgjast með hversu margir koma í þessa ferð. Verð í þessa ferð verða tilkynnt síðar, það er verið að hnýta alla lausa enda.

Óvissuferð Read More »

Fréttir frá stjórn og nefndum

Ágætu félagar, hér koma fréttir frá stjórn og nefndum. Eins og undanfarin ár þá viljum við bjóða ykkur að leggja félagsgjaldið fyrir árið 2011, kr. 4.000.- beint inn á reikning félagsins, fyrir 11. mars n.k. Eftir það verða sendir út greiðsluseðlar og bætast þá við seðilgjöld kr. 300,- (gjald sem bankinn tekur fyrir að innheimta fyrir okkur).
Áætlað er  að félagatalið og félags-og afsláttarskírteinin verði tilbúin í kringum 26. mars n.k.
Athugið! Nýr reikningur félagsins er: 1193 – 26 – 6812Kennitala félagsins: 681290-1099. Látið koma fram á greiðslunni kennitölu ykkar sem tilvísun.

Fréttir frá stjórn og nefndum Read More »

Af starfinu…

Ágætu félagar! Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gömlu árin. Megi nýja árið verða okkur öllum gott ferðaár.
Nú er vinna hafin við gerð félagatalsins okkar fyrir árið 2011. Ef þið viljið kaupa auglýsingu í þessu frábæra hefti eða vitið um einhvern sem vill auglýsa hjá okkur þá endilega hafið samband við formann félagsins Soffíu G. Ólafsdóttur í síma 896-5057  eða sendið tölvupóst á husbill@husbill.is og ég mun þá hafa samband við viðkomandi.

Af starfinu… Read More »

Gleðilega hátíð

Ágætu húsbílafélagar nær og fjær.Sendum félagsmönnum og fjölskyldum þeirra, svo og íslendingum öllum, okkar bestu óskir um gleðilega jólahátið og gæfuríkt komandi ár. Þökkum góðar samverustundir á árinu sem er að líða.Megi nýja árið verða okkur öllum gott ferðaár.
Stjórn og nefndir Félags húsbílaeigenda.

Gleðilega hátíð Read More »

Ný myndaalbúm og fl.

Var að smella inn nýjum myndaalbúmum, frá Hallgeirsey, Logalandi og síðast en ekki síst frá Árshátíðinni.Nú svo eru alltaf nýjar auglýsingar svo það er um að gera að kíkja reglulega á sölusíðuna líka. Endilega látið mig vita ef þið vitið af úreltum auglýsingum. – Kv. Netstjórinn

Ný myndaalbúm og fl. Read More »

Árshátíðin…

Ágætu félagar. Það eru enn nokkur herbergi laus á Árshátíðina n.k. laugardag( 2 nætur eru líka í boði) einnig er laust í borðhaldið ef þið viljið koma á bílnum ykkar. Endilega hafið samband sem fyrst við Soffíu formann í síma 896-5057 eða sendið tölvupóst husbill@husbill.is Þetta verður  góð skemmtun með góðum félögum, koma svo félagar.Með bestu kveðju, Soffía

Árshátíðin… Read More »

Fréttabréf – Fundarboð – Auglýsingar – Árshátíð

Var að setja inn á síðuna fréttabréf októbermánaðar, en það inniheldur meðal annars fundarboð á Aðalfundinn sem haldinn verður 9. okt. Síðan eru náttúrulega alltaf nýjar auglýsingar reglulega og síðast en ekki síst er matseeðill og dagskrá árshátíðarinnar orðin klár og  með því að smella á \“lesa meira\“ linkinn hér aftan við, getið þið skoðað matseðilinn. – Njótið – Kv. netstjórinn

Fréttabréf – Fundarboð – Auglýsingar – Árshátíð Read More »

Til þeirra sem voru í lokaferðinni að Borg

Ágætu félagar. Þeir aðilar sem sjá um tjaldstæðið á Minni- Borg höfðu samband við okkur og tjáðu okkur að 13-15 bílar sem komu á fimmtudeginum hefðu ekki greitt fyrir aðstöðuna þann sólarhring. Af þessum fjölda voru 4 bílar á planinu fyrir utan félagsheimilið.Eins og stendur á miða við salernisaðstöðuna eru þeir sem gista á tjaldstæðinu beðnir um að gera upp leiguna í sundmiðstöðinni. Félagið  samdi um aðstöðuna frá föstudegi til sunnudags, eins og kom fram í öllum tilkynningum frá félaginu.

Til þeirra sem voru í lokaferðinni að Borg Read More »