admin

Næturfrost á Suðurlandi

Eins og mbl.is greinir frá í dag, þá er næturfrost farið að láta á sér kræla, allavega hér á Suðurlandi, og því gott að gera ráðstafanir í sambandi við við vatnsmálin í húsbílunum. Margir setja á haustin þvottaklemmu á öryggisventlana á miðstöðvunum, svo þær tæmi sig ekki þegar hitinn fer niður undir frostmarkið, en þá er holllara að muna eftir því að fjarlægja klemmuna að ferð lokinni. Annars er hætta á því að eitthvað frostspringi ef frostið hækkar skyndilega. Bara nett áminning:-) – Kv. Netstjórinn

Næturfrost á Suðurlandi Read More »

Ný myndaalbúm og fl.

Var að smella inn nýjum myndaalbúmum, frá Hallgeirsey, Logalandi og síðast en ekki síst frá Árshátíðinni.Nú svo eru alltaf nýjar auglýsingar svo það er um að gera að kíkja reglulega á sölusíðuna líka. Endilega látið mig vita ef þið vitið af úreltum auglýsingum. – Kv. Netstjórinn

Ný myndaalbúm og fl. Read More »

Árshátíðin…

Ágætu félagar. Það eru enn nokkur herbergi laus á Árshátíðina n.k. laugardag( 2 nætur eru líka í boði) einnig er laust í borðhaldið ef þið viljið koma á bílnum ykkar. Endilega hafið samband sem fyrst við Soffíu formann í síma 896-5057 eða sendið tölvupóst husbill@husbill.is Þetta verður  góð skemmtun með góðum félögum, koma svo félagar.Með bestu kveðju, Soffía

Árshátíðin… Read More »

Fréttabréf – Fundarboð – Auglýsingar – Árshátíð

Var að setja inn á síðuna fréttabréf októbermánaðar, en það inniheldur meðal annars fundarboð á Aðalfundinn sem haldinn verður 9. okt. Síðan eru náttúrulega alltaf nýjar auglýsingar reglulega og síðast en ekki síst er matseeðill og dagskrá árshátíðarinnar orðin klár og  með því að smella á \“lesa meira\“ linkinn hér aftan við, getið þið skoðað matseðilinn. – Njótið – Kv. netstjórinn

Fréttabréf – Fundarboð – Auglýsingar – Árshátíð Read More »

Til þeirra sem voru í lokaferðinni að Borg

Ágætu félagar. Þeir aðilar sem sjá um tjaldstæðið á Minni- Borg höfðu samband við okkur og tjáðu okkur að 13-15 bílar sem komu á fimmtudeginum hefðu ekki greitt fyrir aðstöðuna þann sólarhring. Af þessum fjölda voru 4 bílar á planinu fyrir utan félagsheimilið.Eins og stendur á miða við salernisaðstöðuna eru þeir sem gista á tjaldstæðinu beðnir um að gera upp leiguna í sundmiðstöðinni. Félagið  samdi um aðstöðuna frá föstudegi til sunnudags, eins og kom fram í öllum tilkynningum frá félaginu.

Til þeirra sem voru í lokaferðinni að Borg Read More »

Smá beiðni fyrir helgina

Ágætu félagar, við í ferðanefnd beinum þeim tilmælum til allra að hafa gjaldið fyrir helgina tilbúið,  þegar við förum að rukka, það munar svo miklu að þurfa ekki að gefa til baka eða nota posann,  það myndi flýta svo fyrir afgreiðslu hjá okkur. Sjáumst sem flest.Með bestu kveðju, Páll, Anna, Dói & Sævar.

Smá beiðni fyrir helgina Read More »

Fréttabréf septembermánaðar

Var að senda, til þeirra sem eru með uppgefin netföng, fréttabréf septembermánaðar. Athugið að fréttabréfið er einnig hér inná síðunni, undir FÉLAGIÐ/Fréttabréfin hérna í linkunum vinstra meginn á síðunni. Neðst í fréttabréfinu þar er hægt að hægrismella á linka, og velja \“Save Target As\“ og vista tvö .pdf skjöl, fyrir þá sem kjósa að prenta út bréfið í hefðbundnu formi. Þá opna menn síðan annað skjalið og prenta það á A-4 blað(og snúið því \“Landscape\“), snúið síðan blaðinu í prentaranum við, opnið seinna skjalið og prentið á bakhliðina. Síðan er bara að brjóta blaðið um miðjuna og þá eru menn komnir með Fréttabréf upp á gamla móðinn:-) 

Fréttabréf septembermánaðar Read More »

Lokaferð að Borg í Grímsnesi, 24. – 26. sept

Lokaferð sumarsins er  að Borg í Grímsnesi.  Þar höfum við félagsheimili til afnota. Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í þeim dagskrárliðum sem þar fara fram.Félagar einnig  hvattir til að mæta stundvíslega á auglýsta dagskrárliði.
Gjald fyrir Lokaferðina er:   Öll helgin, kr. 1.500.- pr/mann, þ.e (hjón kr. 3,000.-) Gestir greiða kr.  2,000.- pr. mann, (þ.e hjón kr. 4,000.-)
* Þar sem þetta merki er sett við í dagskrá er óskað eftir aðstoð hins almenna félagsmanns.

Lokaferð að Borg í Grímsnesi, 24. – 26. sept Read More »

Ógreidd félagsgjöld

Stjórn félags húsbílaeigenda ítrekar til þeirra félagsmanna sem enn hafa ekki greitt félagsgjöld sín, fyrir árið 2010, að gera það fyrir 1. október n.k.  Greiði félagsmenn ekki gjaldið fyrir þann tíma, detta þeir af félagsskrá og missa  um leið númer sín. Vinsamlegast tilkynnið úrsagnir úr félaginu til formanns í síma 896-5057 eða á netfang husbill@husbill.is og þeir sem hætta í félaginu eða selja bíla sína eru vinsamlegast beðnir um að fjærlæga númer og merki félagsins af bílunum.Með bestu kveðju, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður

Ógreidd félagsgjöld Read More »