admin

Lokasendingin?

Sendi Stefnumönnum, vonandi, síðasta stóra listann með breytingum og fórum við Robbi samhliða yfir breytingarnar. Í raun og veru er fátt eftir
nema að lagfæra spjallborðið og notendaviðmótið, en við ætlum okkur að vera með einfalt spjallborð á þessum vef okkar og
þannig vonandi geta

Lokasendingin? Read More »

Ferðafundurinn – dagskrá

Ágætu félagar, næstkomandi laugardag, 20. mars er ferðafundurinn í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ og hefst hann kl. 14.00. Við fáum nokkra góða gesti í heimsókn og svo verða ferðir sumarsins kynntar og er mjög spennandi að sjá hvert farið verður.
Ef komið er frá Reykjavík þá skal taka þriðju akbraut í hringtorginu, sem er við enda Úlfarsfells, inn á veg sem heitir Baugshlíð og í öðru hringtorgi fyrstu akbraut til hægri við sundlaugina og þar ertu kominn inn á planið við Lágafellsskóla.  Skólinn er við enda sundlaugarinnar.  Lágafellsskóli er í þeim enda bæjarins sem er næst Reykjavík. Við vonumst til að  sjá ykkur sem flest. –  Nánar: SKOÐA Á KORTI

Ferðafundurinn – dagskrá Read More »

Aðalfundurinn

FUNDARBOÐ – AÐALFUNDURAðalfundur Félags húsbílaeigenda verður haldinn 9. okt. n.k. kl. 14.00, í veislusal Knattspyrnufélagsins Vals, að Hlíðarenda. Dagskrá fundarins:

Formaður setur fundinn og tilnefnir  fundarstjóra.
Fundarstjóri tilnefnir fundarritara.
Fundarstjóri kynnir dagskrá fundarins.
Formaður flytur skýrslu stjórnar.
Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
Umræður um skýrslu formanns og reikninga félagsins.
Kaffihlé.
Ákvörðun félagsgjalda.
Kosningar í stjórn og nefndir.
Lagabreytingar.
Önnur mál.

Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna!
Ath! Þegar síðasta fréttabréfið fór út þá vantað fólk í ferðanefnd og skemmtinefnd og okkur hefur borist liðsauki Oddný Jónsdóttir nr. 484 gefur kost á sér í ferðanefnd og Úlfhildur Geirsdóttir og Sigvaldi Haraldsson nr. 400 gefa kost á sér í skemmtinefnd.Þá lítur þettasvona út.
Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins:

Soffía G. Ólafsdóttir nr. 24, gefur kost á sér til formanns í félaginu, næstu 2 ár. Aðrir sem gefa kost á sér í stjórn eru:
Reynir Gunnarsson nr. 786,
Guðbjörg Bjarnadóttir nr. 75,
Benedikta Benediktsdóttir nr. 60,
Hlíðar Sæmundsson nr. 2,
Ragna Helgadóttir, nr. 202,
Páll Þorsteinsson nr. 377. 

Í ferðanefnd bjóða sig fram:

 Anna M. Hálfdánardóttir nr. 165,
Sævar Gunnlaugsson nr. 421,
Ásgeir M. Hjálmarsson nr. 712
Oddný Jónsdóttir nr. 484

Í skemmtinefnd félagsins bjóða sig fram:

Elín Íris Jónasdóttir og Daði Þór Einarsson nr. 39
Halldóra M. Gunnarsdóttir og Einar V. Guðnason nr. 392.
Úlfhildur Geirsdóttir og Sigvali Haraldsson nr. 400

Sem skoðunarmenn reikninga bjóða sig fram:

Erla Skarphéðinsdóttir nr. 568,
Hjördís Þorsteinsdóttir nr. 337
Björn Þorbjörnsson nr. 10.

Hlökkum til að hitta ykkur á Aðalfundinum á laugardaginn, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður.

Aðalfundurinn Read More »

Árshátíðin

Árshátíðin verður síðan haldin  15. – 17. okt. 2010.Stjórn, ferðanefnd og skemmtinefnd voru sammála um það að halda árshátíðina á hóteli í ár, og verður hún haldin 15. -17. okt. næstkomandi, að Hótel Hvolsvelli.Verðin eru sem hér segir:Hjón 2 nætur, ásamt kvöldverði á laugardagskvöldinu, skemmtun og dansleik kr. 25,800.-(Ath! ekki matur innifalinn á föstudagsköldinu)
Hjón 1 nótt, ásamt kvöldverði á laugardagskvöldi, skemmtun og dansleik  kr. 19,800.-Einstaklingur 2 nætur, ásamt kvöldverði á laugardagskvöldi, skemmtun og dansleik kr. 15,400.-(Ath. ekki matur innifalinn á föstudagskvöldi)Einstaklingur 1 nótt, ásamt kvöldverði á laugardagsköldi, skemmtun og dansleik, kr. 11.400,-Miði á árshátíðina laugardagskvöld,  kvöldverður, skemmtun og dansleikur,  kr. 5,000.- pr. mann  þ.e hjón kr. 10,000.-Nú er um að gera að panta ágætu félagar, og taka þátt í stórglæsilegri árshátíð, endilega hafið samband með tölvupósti  husbill@husbill.is eða hringið í síma félagsins 896-5057, gott að fá sem fyrst fjöldann sem ætlar að koma.Dagskráin verður auglýst síðar en skemmtinefndin er á fullu að vinna í þessum málum og hefur mikinn metnað eins og hún hefur sýnt í sumar.Í lokaferðinni að Borg í Grímsnesi þ. 24. – 26. sept. n.k. verðum við með posann svo þeir sem vilja geta greitt þar.
Með bestu kveðjum f.h. stjórnar og nefnda, Soffía  G. Ólafsdóttir, formaður.

Árshátíðin Read More »

Skoðunardagurinn hjá Frumherja næsta laugardag!

Skoðunardagur húsbílaeigenda 24. apríl 2010.ATH. Einungis húsbílar félagsmanna skoðaðir þennan dag.
Skoðunardagur Húsbílaeigenda verður 24.apríl n.k. hjá Frumherja Hesthálsi 6-8, Reykjavík. Tekið var tilboði Frumherja og ætla þeir að gera þetta að mjög skemmtilegum degi og boðið er upp á nýlagað kaffi og nýbökuð vínarbrauð um morguninn og grillaður pylsur og gos um hádegið. Boðið verður upp á sömu kjör fyrir félagsmenn á landsbyggðinni. Allir geta látið skoða, endastafur númers skiptir ekki máli. Þeir sem koma í skoðun þurfa að vera búnir að greiða árgjaldið fyrir 2010 og sýna félagsskírteinið sitt.  Sjá nánar hér neðan við

Skoðunardagurinn hjá Frumherja næsta laugardag! Read More »

Árgjaldið, félagatalið og félagsskírteinin

Ágætu félagar við viljum beina því til ykkar að þið greiðið árgjaldið, sem er
kr. 4000.- beint inn á reikning félagsins: 542-26-276 | kt.: 681290 – 1099.
Þetta er ódýrasta leiðin bæði fyrir félagið og ykkur, látið kennitölu ykkar koma fram þegar greitt er, þannig sjáum
við hver er að greiða. Þeir sem ekki hafa greitt fyrir 10. mars n.k. fá senda greiðsluseðla og mun þá bætast á hann 250.-kr. kostnaður.
Það er sá kostnaður sem félagið þarf að greiða fyrir hvern greiddan greiðsluseðil.

Árgjaldið, félagatalið og félagsskírteinin Read More »