admin

Pússl og Getraun

Var að henda inn nýjum myndum í pússlið og eins smellti ég inn mynd í getraunina. Þið megið gjarna senda mér nokkrar myndir í
getraunina og geta þess þá hvað myndirnar eru teknar og svo framvegis:-) Svo er náttúrulega alltaf hreyfing á auglýsingum svo það er um
að gera að vera dugleg að skoða

Pússl og Getraun Read More »

Ferðaáætlunin fyrir 2010 komin á vefinn

Þá er ferðaáætlunin, sem samþykkt var einróma á afar fjölmennum ferðafundi í gær, komin á vefinn. Fundurinn var sem fyrr segir afar fjölmennur og mættu á fjórðahundrað manns. Salurinn sprakk því fljótlega og var því brugðist skjótt við og bætt við borðum og stólum og opnað fram á gang. Vonandi er þetta fyrirboði um aukna þátttöku félagsmanna í ferðum félagsis á komandi ferðasumri.

Ferðaáætlunin fyrir 2010 komin á vefinn Read More »

Jæja þá er nýja síðan komin í loftið:-)

Þá er nýja síðan komin komin í loftið og ætti að vera orðin sýnileg flestum, ef ekki öllum. Það er von mín að fólk sé sátt við breytinguna þótt auðvitað verði aldrei verði öllum gert til hæfis. Ég hef reynt að hugsa fyrir flestu við hönnun vefsins en eðlilega má búast við því að einhverjir hnökrar verði á honum í fyrstu. Þessi vefur er byggður upp á mörgum mismunandi kerfiseiningum og þær flestar sérsniðnar að okkar þörfum svo að mörgu er að hyggja við samtvinningu slíkra kerfa. Þar af leiðandi þarf eflaust að fínstilla einhverja hluti og verður það gert eftir hendinni.

Jæja þá er nýja síðan komin í loftið:-) Read More »

Ítrekum um millifærslu á árgjaldinu

Ég vil þakka öllum þeim sem hafa greitt félagsgjaldið beint inn á reikning félagsins, um leið og ég hvet þá sem ekki hafa greitt ennþá að gera það á næstu dögum. 10 mars. n.k. munum við senda út innheimtuseðla og þá bætist við árgjaldið 250 krónur og er það sá kostnaður sem við þurfum að greiða fyrir þessa innheimtu pr/seðil. Ég vona að þið virðið þetta við okkur, við erum að reyna eins og við getum að lágmarka kostnað fyrir félagið, nota peningana sem inn koma í eitthvað skemmtilegt fyrir félagana.Innleggsreikningur okkar er 0542-26-276 Kt. félagsins er 681290-1099, og árgjaldið er kr. 4,000.-

Ítrekum um millifærslu á árgjaldinu Read More »

Slökkvitæki – Nýjar reglur

Nú hefur verið bætt í skoðunarreglur um húsbíla, að sett sé ábending (I) vanti slökkvitæki í húsbílinn, þ.e. ábending sem leiðir ekki til endurskoðunar(II). Samkvæmt símtali við Umferðarstofu(15. feb 2010) verður svo áfram um einhver ár og er sá tími hugsaður til aðlögunar fyrir húsbílaeigendur. Ísland hefur enn heimild til setningu síkra \“aukinna/harðari\“ reglna umfram venjubundnar evrópureglugerðir.

Slökkvitæki – Nýjar reglur Read More »

Pússl & Getraun

Var að henda inn nýjum myndum í pússlið og eins smellti ég inn mynd í getraunina. Ath! Þetta er í síðasta skiptið sem
ég ég nudda í ykkur með að senda mér myndir… svo endilega ákveðið ykkur félagar góðir, hvort þið viljið getraunina
áfram eða ekki. Ef svarið er já… þá sendið þið mér myndir í hana og getið þess þá hvar myndirnar eru teknar og
svo framvegis. Annars er þessu sjálfhætt

Pússl & Getraun Read More »

Fréttabréf

Félagar, nú hafa allir, þeir sem eru með netföng, fengið fréttabréfið inn á póstinn sinn, en eitthvað er um að netföng
eru ekki rétt eða dottin út, sendið leiðréttingar á netfang félagsins. Fréttabréfið fer, eftir helgi, í póst til
þeirra sem ekki eru með netföng. Ég var búin að fara lauslega yfir þetta og sýndist það vera um 180 manns en það er heldur meira
eða 280 manns, ég er nokkuð viss um að margir af þeim eru komnir með netföng en hafa ekki tilkynnt það. Vinsamlegast drífið í
því strax.

Fréttabréf Read More »