admin

Mýrdalsjökull minnir á sig – Skrifað: 03:30

Búið er að loka fyrir umferð frá Hvolsvelli og að Skógum. Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna, segir að um 20 bæir undir Eyjafjöllunum næst Eyjafjallajöklinum sjálfum hafi verið rýmdir vegna gosóróa. Fólki hafi verið gefnar leiðbeiningar um hvert skyldi halda eða í næstu fjöldhjálparstöð líkt og þegar gosið hófst á Fimmvörðuhálsi. Óróinn nú sé undir toppgíg Eyjafjallajökuls. Almannavarnir eiga eftir að meta hvort farið verði í rýmingu á stærra svæði.

Mýrdalsjökull minnir á sig – Skrifað: 03:30 Read More »

Sendið inn rétt/virk netföng

Það kom í ljós þegar sendur var vefpóstur til félagsmanna að eftirtaldir félagar eru skráðir með óvirkar og/eða rangar e-mail addressur, hjá félaginu, sem taka ekki við pósti. Vinsamlegast sendið okkur nýjar e-mail addressur ásamt félagsnúmeri ykkar á: netstjori@husbill.isFélagi nr.:  142, 191, 252, 292, 380, 429, 433,  557, 571, 593, 594, 672, 673, 710, 724, 725, 739, 772, 783,

Sendið inn rétt/virk netföng Read More »

Var að setja inn Eldsneytis – Verðvaktara.

Sælir félagar! Var verið að bæta inn Eldsneytis – Verðvaktara á síðuna og er hann staðsettur hérna í gluggunum vinstra megin, undir ELDSNEYTISVERÐ. Þessi vaktari er í boði http://www.gsmbensin.is/ sem rekin er af Seiði ehf. Ég rakst á slíkan vaktara á heimasíðu Fíb og hafði samband við þá hjá Seiði og spurði  þá hvort mögulegt væri að fá að vera með slíkan á síðunni hjá okkur. Þeir brugðust afar vel við og báðu mig að senda sér útlitið af því hvernig hann skildi líta út og sérsniðu síðan vaktara fyrir fyrir husbill.is, okkur að kostnaðarlausu. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Var að setja inn Eldsneytis – Verðvaktara. Read More »

Nýi Orkulykillinn – Sérkjör til félagsmanna

Var að setja inn á tilboðssíðuna sérkjaratilboð frá Orkunni og Shell. Þau bjóða meðlimum í Félagi Húsbílaeigenda, nýjan Orkulykil með sérkjörum á bensínstöðvum Shell og Orkunnar. Sérkjörin tryggja félagsmönnum allar gerðir af eldsneyti og úrvalsþjónustu á góðum afslætti í hvert sinn sem greitt er með Orkulyklinum (eða Orkukorti) hjá Shell eða Orkunni um land allt.

Nýi Orkulykillinn – Sérkjör til félagsmanna Read More »

Búið að senda út aðgangs-upplýsingarnar á MITT SVÆÐI

Sælir félagar! Já þá er loksins búið að hefla af mestu agnúana af lokaða kerfinu og því er ég búinn að senda út aðgangs- upplýsingar þannig að þið getið skáð ykkur inn á lokaða svæðið(MITT SVÆÐI).  Ég útbjó líka skref fyrir skref leiðbeiningar um það hvernig bera skuli sig að því að skipta um Lykilorð og Aðgangsorð, og hvenrig skuli setja inn mynd í félagatalið og fl.

Búið að senda út aðgangs-upplýsingarnar á MITT SVÆÐI Read More »