Var að setja inn Eldsneytis – Verðvaktara.
Sælir félagar! Var verið að bæta inn Eldsneytis – Verðvaktara á síðuna og er hann staðsettur hérna í gluggunum vinstra megin, undir ELDSNEYTISVERÐ. Þessi vaktari er í boði http://www.gsmbensin.is/ sem rekin er af Seiði ehf. Ég rakst á slíkan vaktara á heimasíðu Fíb og hafði samband við þá hjá Seiði og spurði þá hvort mögulegt væri að fá að vera með slíkan á síðunni hjá okkur. Þeir brugðust afar vel við og báðu mig að senda sér útlitið af því hvernig hann skildi líta út og sérsniðu síðan vaktara fyrir fyrir husbill.is, okkur að kostnaðarlausu. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Var að setja inn Eldsneytis – Verðvaktara. Read More »