admin

Meira um Stóru Ferðina…

Kæru félagar. Nú eru aðeins 4 dagar þar til Stóra ferðin hefst eða n.k. laugardag 10. júlí, að Freysnesi. Við höfum frétt að nokkrir félagar séu lagðir af stað og enn aðrir eru að fara á miðvikudag,  fimmtudag og föstudag. Það er spáð roki í nótt sem á að ganga yfir á morgun svo hugið vel  að veðrinu ágætu félagar og teflið ekki í neina tvísýnu þetta gengur fljótt yfir. Það er margt að skoða á þessari leið  sem við

Meira um Stóru Ferðina… Read More »

Ágústferðin í Logaland

Ágústferðinnni, sem er gjaldfrí fyrir alla þá félaga sem greitt hafa árgjaldið fyrir 2010, er heitið að Logalandi í Borgarfirði. Ferðin er helgina 20. – 22. ágúst. Að Logalandi erum við svo heppin að hafa hús til afnota og hvetjum við félagsmenn til að nýta sér þá aðstöðu sem við höfum aðgang að. Skemmtinefndin ætlar að treysta því að félagar verði duglegir að skemmta sér sjálfir og nefndin ætlar að njósna um félagana og sjá hvernig tekst til.

Ágústferðin í Logaland Read More »

Til þeirra sem voru í lokaferðinni að Borg

Ágætu félagar. Þeir aðilar sem sjá um tjaldstæðið á Minni- Borg höfðu samband við okkur og tjáðu okkur að 13-15 bílar sem komu á fimmtudeginum hefðu ekki greitt fyrir aðstöðuna þann sólarhring. Af þessum fjölda voru 4 bílar á planinu fyrir utan félagsheimilið.Eins og stendur á miða við salernisaðstöðuna eru þeir sem gista á tjaldstæðinu beðnir um að gera upp leiguna í sundmiðstöðinni. Félagið  samdi um aðstöðuna frá föstudegi til sunnudags, eins og kom fram í öllum tilkynningum frá félaginu.

Til þeirra sem voru í lokaferðinni að Borg Read More »

Smá beiðni fyrir helgina

Ágætu félagar, við í ferðanefnd beinum þeim tilmælum til allra að hafa gjaldið fyrir helgina tilbúið,  þegar við förum að rukka, það munar svo miklu að þurfa ekki að gefa til baka eða nota posann,  það myndi flýta svo fyrir afgreiðslu hjá okkur. Sjáumst sem flest.Með bestu kveðju, Páll, Anna, Dói & Sævar.

Smá beiðni fyrir helgina Read More »

Fréttabréf septembermánaðar

Var að senda, til þeirra sem eru með uppgefin netföng, fréttabréf septembermánaðar. Athugið að fréttabréfið er einnig hér inná síðunni, undir FÉLAGIÐ/Fréttabréfin hérna í linkunum vinstra meginn á síðunni. Neðst í fréttabréfinu þar er hægt að hægrismella á linka, og velja \“Save Target As\“ og vista tvö .pdf skjöl, fyrir þá sem kjósa að prenta út bréfið í hefðbundnu formi. Þá opna menn síðan annað skjalið og prenta það á A-4 blað(og snúið því \“Landscape\“), snúið síðan blaðinu í prentaranum við, opnið seinna skjalið og prentið á bakhliðina. Síðan er bara að brjóta blaðið um miðjuna og þá eru menn komnir með Fréttabréf upp á gamla móðinn:-) 

Fréttabréf septembermánaðar Read More »

Lokaferð að Borg í Grímsnesi, 24. – 26. sept

Lokaferð sumarsins er  að Borg í Grímsnesi.  Þar höfum við félagsheimili til afnota. Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í þeim dagskrárliðum sem þar fara fram.Félagar einnig  hvattir til að mæta stundvíslega á auglýsta dagskrárliði.
Gjald fyrir Lokaferðina er:   Öll helgin, kr. 1.500.- pr/mann, þ.e (hjón kr. 3,000.-) Gestir greiða kr.  2,000.- pr. mann, (þ.e hjón kr. 4,000.-)
* Þar sem þetta merki er sett við í dagskrá er óskað eftir aðstoð hins almenna félagsmanns.

Lokaferð að Borg í Grímsnesi, 24. – 26. sept Read More »

Ógreidd félagsgjöld

Stjórn félags húsbílaeigenda ítrekar til þeirra félagsmanna sem enn hafa ekki greitt félagsgjöld sín, fyrir árið 2010, að gera það fyrir 1. október n.k.  Greiði félagsmenn ekki gjaldið fyrir þann tíma, detta þeir af félagsskrá og missa  um leið númer sín. Vinsamlegast tilkynnið úrsagnir úr félaginu til formanns í síma 896-5057 eða á netfang husbill@husbill.is og þeir sem hætta í félaginu eða selja bíla sína eru vinsamlegast beðnir um að fjærlæga númer og merki félagsins af bílunum.Með bestu kveðju, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður

Ógreidd félagsgjöld Read More »

Næturfrost á Suðurlandi

Eins og mbl.is greinir frá í dag, þá er næturfrost farið að láta á sér kræla, allavega hér á Suðurlandi, og því gott að gera ráðstafanir í sambandi við við vatnsmálin í húsbílunum. Margir setja á haustin þvottaklemmu á öryggisventlana á miðstöðvunum, svo þær tæmi sig ekki þegar hitinn fer niður undir frostmarkið, en þá er holllara að muna eftir því að fjarlægja klemmuna að ferð lokinni. Annars er hætta á því að eitthvað frostspringi ef frostið hækkar skyndilega. Bara nett áminning:-) – Kv. Netstjórinn

Næturfrost á Suðurlandi Read More »

Árshátíðin 16. október 2010

Ágætu félagar!LEIÐRÉTT VERÐ – Vegna misskilnings, hjá okkur, fóru um daginn rangar tölur vegna árshátíðarinnar hér inn á heimasíðuna, en þar sem um er að ræða lækkun, þá er þetta bara gleðilegt og ætti að verða til þess að enn fleiri komast.
Okkur stendur einnig til boða að gista tvær nætur, þ.e. koma föstudaginn 15. okt. og árshátíðin er svo á laugardeginum 16. okt. en í neðangreindum verðum er ekki innifalinn matur á föstudagskvöldinu.

Árshátíðin 16. október 2010 Read More »

Vegvísir í Logaland og fl.

Rata ekki allir að Logalandi í Reykholtsdal? Fyrir þá sem koma að sunnan þá akið þið eins og þið ætlið norður í land, en rétt áður en þið komið að brúnni hjá Borgarnesi þá beygið þið til hægri, inn á Borgarfjarðarbraut vegur nr. 50, og akið eins og þið ætlið til Húsafells, farið í gegnum húsaþyrpingu sem heitir Kleppsjárnsreykir, beygið svo til hægri áður en þið farið yfir brúna á Reykjadalsá, og þá blasir félagsheimilið við ykkur. Þeir sem koma norðan megin þá beygið þið inn á Borgarfjarðarbrautina veg nr. 50 (vegurinn er líka nr. 50 þarna sami vegurinn) og keyrið eins og þið ætlið í Reykholt, en þeir sem koma þarna megin fara yfir brúna (Reykjadalsá) og beygið til vinstri…. Vona að þetta sé sæmilega skýrt!
Svo var verið að setja inn myndir frá ferðum sumarsins, og alltaf eru einhverjar breytingar og nýjar auglýsingar á sölusíðunni. – Kv. Netstjórinn.

Vegvísir í Logaland og fl. Read More »