admin

Smá ábending

Ágætu félagar. Nú fer í hönd stóra helgin hjá okkur “Hvítasunnuhelgin”  og þessa helgi mæta margir og því þarf að skipuleggja plássið vel. Það hefur færst mjög í vöxt að félagarnir koma með fjórhjól  með sér (sem er bara gaman)  og eru þau þá á kerru  og þetta tekur töluvert pláss.Því viljum við í Stjórn, ferða-og skemmtinefnd beina því til ykkar ágætu félagar að þið farið ekki með kerruna og hjólið inn á tjaldsvæðið, heldur geymið hana niðri á mölinni fyrir neðan tjaldsvæðið.Með von um góða samvinnu.
Soffía G. Ólafsdóttir, formaður

Smá ábending Read More »

Hvítasunnuferð að Hlöðum 2011 – Dagskrá

Verð: Félagsmenn 18 ára og eldri kr. 3.000.- pr.mann. Gestir: 18 ára og eldri kr. 4.000.-  pr.mann.Þeir aðilar sem ekki hafa greitt árgjald greiða eins og gestir. Vinsamlegast hafið greiðsluna tilbúna í seðlum. Fullorðnir fá afhent merki sem þeir eru beðnir að hafa á sér alla helgina, gildir sem aðgöngumiði á skemmtun félagsins og dansleiki, einnig fáið þið kaffimiða fyrir hátíðarkaffið á hvítasunnudag, og þau börn sem fylgja hverjum og einum. Okkur hefur verið lofað að sundlaugin verði opin alla helgina.

Hvítasunnuferð að Hlöðum 2011 – Dagskrá Read More »

Nýtt og glæsilegt þjónustuhús opnað á tjaldsvæðinu í Grindavík

Fréttatilkynning:Nýtt og glæsilegt þjónustuhús var opnað á tjaldsvæðinu í Grindavík í síðustu viku.  Þetta 220 fermetra þjónustuhús er í alla staði hið glæsilegasta og hafa tjaldsvæðisgestir í sumar lýst yfir mikilli ánægu sinni með það. Nýtt og sérhannað tjaldsvæði var opnað í Grindavík vorið 2009 og með tilkomu nýja þjónustuhússins er tjaldsvæðið með því allra besta á landinu og þótt víðar væri leitað. Nýja tjaldsvæðið er vel staðsett við Austurveg með fallegt útsýni yfir höfnina. Kostnaður við húsið var á sjötta tug milljóna króna.

Nýtt og glæsilegt þjónustuhús opnað á tjaldsvæðinu í Grindavík Read More »

Ath! – Ferð í T-bæ fellur niður

Ferð sem fara átti að T-bæ í Selvogi fellur því miður niður vegna óviðráðanlegra orsaka.
Okkur þykir það mjög létt að svona fer en því miður er ekkert við því að gera.Við vonum svo sannarlega að þetta komi sér ekki illa við nokkurn mann en þetta er Jónsmessuhelgin og því margt um að vera út um allt land og eflaust félagarnir víða á ferðinni og óskum við ykkur öllum skemmtilegrar Jónsmessuhelgi. Nú undirbúum við okkur öll fyrir Hvítasunnuferðina að Hlöðum, þ.e 10. – 13. júní n.k. Dagskráin mun koma inn á heimasíðuna fljótlega.
Næsta ferð þar á eftir er svo Stóra-ferðin um Snæfellsnes 9. -17. júlí n.k. og vonandi fáum við í þessum ferðum flott veður.
Kveðja, Soffía

Ath! – Ferð í T-bæ fellur niður Read More »

Fyrsta ferð 2011, að Úlfljótsvatni

Föstudagur 27. maí:Aðgangseyrir er kr. 2.000 á bíl. Gestir greiða 3.000 kr. á bíl.  Vinsamlegast hafið greiðsluna tilbúna í seðlum.Föstudagar eru sérstakir hattadagar og er félagsmönnum uppálagt að ganga með hatta þá daga að viðurlagðri skömm og hneisu, sem skammari sér um að framfylgja á næsta fundi/atburði á vegum félagsins.Veiðikeppni verður bæði föstudag og laugardag.

Fyrsta ferð 2011, að Úlfljótsvatni Read More »

Myndaalbúm

Sælir félagar!Var að smella inn myndum frá Skoðunardeginum og eins er komið inn nýtt albúm frá óvissuferðinni. Myndirnar í þessum albúmum eru í boði Önnu Hálfdánar. Svo er auðvitað alltaf verið að uppfæra og setja inn nýjar auglýsingar – Kveðja Netstjórinn

Myndaalbúm Read More »

Skoðunardagurinn og fleira

Skoðunardagurinn er laugardaginn 7. maí hjá Frumherja að Hesthálsi 6-8 í Reykjavík. Það má segja að þetta sé fyrsta ferðin okkar og við hvetjum alla þá sem þurfa að láta skoða bílana sína að mæta með bílinn í
skoðun á laugardeginum og þeir sem hafa tök á því að koma á föstudagskvöldinu
og gista á planinu hjá Frumherja. Einnig hvetjum við þá sem ekki þurfa að láta
skoða að koma því það er svo margt í gangi á laugardeginum sem er fróðlegt og
skemmtilegt. Á laugardagsmorguninn býður Frumherji öllum þeim sem gista á
planinu upp á morgunverð kl. 8.00. Þeir ætla síðan að byrja að skoða bílana kl.
9.00 og verða þeir með nægan mannskap svo þetta ætti að ganga vel fyrir sig.
Áætlað er að skoðun ljúki kl. 14.00. Boðið verður upp á kaffi, heitt kakó og
vínarbrauð og um hádegisbilið verða grillaðar pylsur og gos.

 
Kl 11-14 fer fram slökkvitækjakynning í
boði Eldvarnarmiðstöðvarinnar og Pitstop verður með kynningu á dekkjum og sinni
þjónustu. Sýnikennsla verður í brunavörnum, og á slökkvitækjum.
Boðið
verður upp á lifandi tónlist sem hljóðfæraleikarar úr félaginu munu sjá um.
Forvarnarfulltrúi frá VÍS kemur og talar
um forvarnir við okkur.
Eins og þið sjáið á þessari upptalningu þá
verður boðið upp á margt á skoðunardeginum og því um að gera að fjölmenna,njóta
og fræðast og hitta félagana eftir langan vetur. Við viljum biðja þá sem ætla
að gista að skrá sig svo að Frumherji verði með nógan morgunmat. Hafið samband
við Soffíu í síma 896-5057 eða Sævar í síma 898-5920 eða sendið tölvupóst á husbill@husbill.is
Aðeins verða húsbílar skoðaðir þennan dag
og er verðið 5.200 kr. óháð stærð og vinsamlegast sýnið félagsskírteinið ykkar
2011. Allir félagar í Félagi húsbílaeigenda fá boðsbréf frá Frumherja og gildir
þetta tilboð (verðið) á öllum skoðunarstöðum Frumherja um allt land til 1.júlí
n.k.
Eftir skoðun ætlum við svo að hittast kát
og glöð á nýskoðuðum bílum á tjaldsvæðinu á Víðilsstaðatúni í Hafnarfirði, verð
750 kr pr mann ásamt rafmagni. Vonandi sjá sem flestir sér færi á því að koma
þessa helgi og gera góða útilegu úr þessum Skoðunardegi.Greiðsla félagsgjaldsins:
Þar sem þó nokkuð margir hafa verið að greiða félagsgjaldið núna á síðustu dögum þá mun formaður hafa félagatalið og félags-og afsláttarskírteinin með sér á Skoðunardaginn  til Frumherja  og afhenda félagsmönnum, það er varla að þetta náist til ykkar í pósti fyrir helgina.Eldvarnirnar: Við viljum árétta það sem  Jóhann Sævar Kristbergsson eldvarnareftirlitsmaður frá Brunavörnum Suðurnesja talaði um á ferðafundinum í sambandi við  brunavarnir á tjaldstæðum. Þar tók  hann skýrt fram að hafa þyrfti góðar flóttaleiðir og í því sambandi þyrfti að passa vel upp á að bílar, hjólhýsi og aðrir vagnar væru ekki  of þétt lagðir, það getur skapað mikla hættu.
Hér er um þarfa ábendingu að ræða sem við öll skulum hafa í  huga. Hér er smá mynd sem hann sýndi okkur sem gott er að hafa í huga þegar við leggjum bílum okkar þar sem við gistum. Verum öll meðvitum um þá hættu sem skapast getur ef við leggjum of þétt og t.d. myndi kvikna í.

Skoðunardagurinn og fleira Read More »

Tilkynning frá Stefnu, hýsingaraðilanum okkar

Sunnudaginn 3. apríl fer fram uppfærsla á vefþjónum Stefnu ehf. Má búast við tímabundnum truflunum á  vef- og póstsamskiptum milli kl.10:00 og 16:00. Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.Kær kveðja, starfsfólk Stefnu
Þetta þýðir að vefsíðan okkar gæti legið niðri á þessum tíma, þ.e á meðan uppfærslurnar fara fram. Eins gæti verið erfitt að senda okkur póst á netföngin okkar: husbill@husbill.is og netstjori@husbill.is á sama tíma.

Tilkynning frá Stefnu, hýsingaraðilanum okkar Read More »