admin

Nýtt og glæsilegt þjónustuhús opnað á tjaldsvæðinu í Grindavík

Fréttatilkynning:Nýtt og glæsilegt þjónustuhús var opnað á tjaldsvæðinu í Grindavík í síðustu viku.  Þetta 220 fermetra þjónustuhús er í alla staði hið glæsilegasta og hafa tjaldsvæðisgestir í sumar lýst yfir mikilli ánægu sinni með það. Nýtt og sérhannað tjaldsvæði var opnað í Grindavík vorið 2009 og með tilkomu nýja þjónustuhússins er tjaldsvæðið með því allra besta á landinu og þótt víðar væri leitað. Nýja tjaldsvæðið er vel staðsett við Austurveg með fallegt útsýni yfir höfnina. Kostnaður við húsið var á sjötta tug milljóna króna.

Nýtt og glæsilegt þjónustuhús opnað á tjaldsvæðinu í Grindavík Read More »

Ath! – Ferð í T-bæ fellur niður

Ferð sem fara átti að T-bæ í Selvogi fellur því miður niður vegna óviðráðanlegra orsaka.
Okkur þykir það mjög létt að svona fer en því miður er ekkert við því að gera.Við vonum svo sannarlega að þetta komi sér ekki illa við nokkurn mann en þetta er Jónsmessuhelgin og því margt um að vera út um allt land og eflaust félagarnir víða á ferðinni og óskum við ykkur öllum skemmtilegrar Jónsmessuhelgi. Nú undirbúum við okkur öll fyrir Hvítasunnuferðina að Hlöðum, þ.e 10. – 13. júní n.k. Dagskráin mun koma inn á heimasíðuna fljótlega.
Næsta ferð þar á eftir er svo Stóra-ferðin um Snæfellsnes 9. -17. júlí n.k. og vonandi fáum við í þessum ferðum flott veður.
Kveðja, Soffía

Ath! – Ferð í T-bæ fellur niður Read More »

Fyrsta ferð 2011, að Úlfljótsvatni

Föstudagur 27. maí:Aðgangseyrir er kr. 2.000 á bíl. Gestir greiða 3.000 kr. á bíl.  Vinsamlegast hafið greiðsluna tilbúna í seðlum.Föstudagar eru sérstakir hattadagar og er félagsmönnum uppálagt að ganga með hatta þá daga að viðurlagðri skömm og hneisu, sem skammari sér um að framfylgja á næsta fundi/atburði á vegum félagsins.Veiðikeppni verður bæði föstudag og laugardag.

Fyrsta ferð 2011, að Úlfljótsvatni Read More »

Myndaalbúm

Sælir félagar!Var að smella inn myndum frá Skoðunardeginum og eins er komið inn nýtt albúm frá óvissuferðinni. Myndirnar í þessum albúmum eru í boði Önnu Hálfdánar. Svo er auðvitað alltaf verið að uppfæra og setja inn nýjar auglýsingar – Kveðja Netstjórinn

Myndaalbúm Read More »

Skoðunardagurinn og fleira

Skoðunardagurinn er laugardaginn 7. maí hjá Frumherja að Hesthálsi 6-8 í Reykjavík. Það má segja að þetta sé fyrsta ferðin okkar og við hvetjum alla þá sem þurfa að láta skoða bílana sína að mæta með bílinn í
skoðun á laugardeginum og þeir sem hafa tök á því að koma á föstudagskvöldinu
og gista á planinu hjá Frumherja. Einnig hvetjum við þá sem ekki þurfa að láta
skoða að koma því það er svo margt í gangi á laugardeginum sem er fróðlegt og
skemmtilegt. Á laugardagsmorguninn býður Frumherji öllum þeim sem gista á
planinu upp á morgunverð kl. 8.00. Þeir ætla síðan að byrja að skoða bílana kl.
9.00 og verða þeir með nægan mannskap svo þetta ætti að ganga vel fyrir sig.
Áætlað er að skoðun ljúki kl. 14.00. Boðið verður upp á kaffi, heitt kakó og
vínarbrauð og um hádegisbilið verða grillaðar pylsur og gos.

 
Kl 11-14 fer fram slökkvitækjakynning í
boði Eldvarnarmiðstöðvarinnar og Pitstop verður með kynningu á dekkjum og sinni
þjónustu. Sýnikennsla verður í brunavörnum, og á slökkvitækjum.
Boðið
verður upp á lifandi tónlist sem hljóðfæraleikarar úr félaginu munu sjá um.
Forvarnarfulltrúi frá VÍS kemur og talar
um forvarnir við okkur.
Eins og þið sjáið á þessari upptalningu þá
verður boðið upp á margt á skoðunardeginum og því um að gera að fjölmenna,njóta
og fræðast og hitta félagana eftir langan vetur. Við viljum biðja þá sem ætla
að gista að skrá sig svo að Frumherji verði með nógan morgunmat. Hafið samband
við Soffíu í síma 896-5057 eða Sævar í síma 898-5920 eða sendið tölvupóst á husbill@husbill.is
Aðeins verða húsbílar skoðaðir þennan dag
og er verðið 5.200 kr. óháð stærð og vinsamlegast sýnið félagsskírteinið ykkar
2011. Allir félagar í Félagi húsbílaeigenda fá boðsbréf frá Frumherja og gildir
þetta tilboð (verðið) á öllum skoðunarstöðum Frumherja um allt land til 1.júlí
n.k.
Eftir skoðun ætlum við svo að hittast kát
og glöð á nýskoðuðum bílum á tjaldsvæðinu á Víðilsstaðatúni í Hafnarfirði, verð
750 kr pr mann ásamt rafmagni. Vonandi sjá sem flestir sér færi á því að koma
þessa helgi og gera góða útilegu úr þessum Skoðunardegi.Greiðsla félagsgjaldsins:
Þar sem þó nokkuð margir hafa verið að greiða félagsgjaldið núna á síðustu dögum þá mun formaður hafa félagatalið og félags-og afsláttarskírteinin með sér á Skoðunardaginn  til Frumherja  og afhenda félagsmönnum, það er varla að þetta náist til ykkar í pósti fyrir helgina.Eldvarnirnar: Við viljum árétta það sem  Jóhann Sævar Kristbergsson eldvarnareftirlitsmaður frá Brunavörnum Suðurnesja talaði um á ferðafundinum í sambandi við  brunavarnir á tjaldstæðum. Þar tók  hann skýrt fram að hafa þyrfti góðar flóttaleiðir og í því sambandi þyrfti að passa vel upp á að bílar, hjólhýsi og aðrir vagnar væru ekki  of þétt lagðir, það getur skapað mikla hættu.
Hér er um þarfa ábendingu að ræða sem við öll skulum hafa í  huga. Hér er smá mynd sem hann sýndi okkur sem gott er að hafa í huga þegar við leggjum bílum okkar þar sem við gistum. Verum öll meðvitum um þá hættu sem skapast getur ef við leggjum of þétt og t.d. myndi kvikna í.

Skoðunardagurinn og fleira Read More »

Tilkynning frá Stefnu, hýsingaraðilanum okkar

Sunnudaginn 3. apríl fer fram uppfærsla á vefþjónum Stefnu ehf. Má búast við tímabundnum truflunum á  vef- og póstsamskiptum milli kl.10:00 og 16:00. Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.Kær kveðja, starfsfólk Stefnu
Þetta þýðir að vefsíðan okkar gæti legið niðri á þessum tíma, þ.e á meðan uppfærslurnar fara fram. Eins gæti verið erfitt að senda okkur póst á netföngin okkar: husbill@husbill.is og netstjori@husbill.is á sama tíma.

Tilkynning frá Stefnu, hýsingaraðilanum okkar Read More »

Varðandi árgjaldið og innheimtu þess

Við auglýstum, fyrir nokkru hér á heimasíðunni, að eftir 11. mars yrðu sendir út greiðsluseðlar með kostnaði ef ekki hefðu áður borist innlegg  frá félögum. Nú er sem sé komið að því og hafa gíróseðlar fyrir félagsgjöldunum verið sendir, öllum þeim sem skráðir voru í félagið um áramót, en ekki búnir að greiða fyrir 28. mars s.l.Félagsgjaldið er kr. 4.000,- og svo leggst á kr. 300,- í seðilgjald(sem er kostnaður sem félagið verður fyrir vegna  innheimtunnar).  Gjalddagi seðlanna er 15.04.2011 og eindagi 05.05.2011.  Ef ekki er greitt fyrir eindaga, bætast við dráttarvextir,  frá gjalddaga.
Með bestu kveðju, gjaldkeri Félags húsbílaeigenda,Guðbjörg Bjarnadóttir

Varðandi árgjaldið og innheimtu þess Read More »

Minnum á ferðafundinn

Minnum ykkur á ferðafundinn 26.mars n.k. í sal Gerðaskóla í Garði  kl. 14.00.  Upplagt ef að veðrið verður gott að koma á húsbílnum og gista út við Garðskaga. Einnig vil ég biðja þá sem ætla að mæta að skrá sig inn á könnunina svo við vitum hvað við þurfum að panta kaffi fyrir marga.Einnig minnum við á að nú eru síðustu forvöð að ganga frá félagsgjaldinu  kr. 4.000,-  inn á reikning félagsins 1193-26-6812 kt. 681290-1099.Í lok næstu viku, þ.e 18. mars  sendum við gíróseðla á þá sem ekki hafa greitt félagsgjaldið og þá bætast við kr. 300,-  á hvern seðil, en það er innheimtuþóknun bankans.Við ráðgerum svo að afhenda félagatalið á ferðafundinum, þeim sem hafa greitt árgjaldið 2011.
Með bestu kveðju, Soffía G. Ólafsdóttir, formaður

Minnum á ferðafundinn Read More »

Óvissuferðin á laugardaginn – Skráningu lokið!

Þá er skráningu lokið í óvissuferðina en það voru 109 manns sem skráðu sig í þessa ferð og verður farið í tveimur rútum. Önnur rútan byrjar í Keflavík kl. 10.00 á laugardagsmorgun við 88 húsið en hin rútan byrjar á planinu hjá  Fossnesti  á Selfossi á sama tíma. Aðrir áningastaðir eru þeir sömu og var búið að setja inn á heimasíðuna.(kíkið á það)
Við viljum biðja ykkur að vera í hlýjum fatnaði og góðum  skóm  þó við séum ekki að fara í neina göngu. Hafið einnig með ykkur eitthvað að drekka  og ef þið viljið eitthvað að narta í, en þegar verður búið að smala öllum saman þá verður smá stopp til að fara á wc. og fá sér eitthvað í gogginn, þeir sem það vilja.  Kaffihlaðborðið verður klukkan rúmlega 16, og komið til Reykjavíkur fyrir kl. 19.00.Vinsamlegast hafið gjaldið tilbúið, kr.  3.000- pr. mann, svo allt gangi hratt fyrir sig.Greitt er þegar komið er í rútuna við upphaf ferðar.Svo er bara að mæta með góða skapið og vonandi verða veðurguðirnir okkur hliðhollir.Hlökkum til að sjá ykkur öll, Ferðanefndin.

Óvissuferðin á laugardaginn – Skráningu lokið! Read More »