Jólakveðja

Kæru félagar, við sendum ykkur, okkar bestu jólakveðjur, eigið yndislega jólahátíð með ættingjum og vinum.
Við þökkum öllum þeim sem komu í ferðir okkar á liðnu sumri fyrir yndislegar samverustundir og hlökkum til næsta sumars sem verður okkur öllum vonandi gott ferðasumar.
Hlökkum til að hitta ykkur hress og kát á næsta ári í ferðum félagsins. 

Blíða nótt, blessaða nótt! 

Blikar skær stjarna rótt. 

Hljómar englanna hátíðarlag. 

Heimur, fagnaðu! Þér er í dag. 

Frelsari fæddur á jörð. 

(Helgi Hálfdánarson / Joseph Mohr) 

Bestu jólakveðjurStjórn, ferða-og skemmtinefnd Félags húsbílaeigenda.

Jólakveðja Read More »

Afmælið!

Komið öll
blessuð og sæl.
Afmælisnefndin
hefur nú ákveðið hvar afmælið skal haldið og hvenær,  það verður helgina
23.-25.ágúst,  á föstudeginum verðum við út á Garðskaga og gerum eitthvað
skemmtilegt þar saman og á   laugardaginn 24.ágúst verður svo
afmælishátíðin  í Íþróttahúsinunu  í Garði.
(og þá
verðum við fyrir utan íþróttahúsið og á skólalóðinni sem er rétt við
íþróttahúsið, nóg pláss).
Þetta
verður vegleg og flott skemmtun og nú er afmælisnefndin að huga að skemmtidagskrá
sem verður mjög vegleg. Stjórnin
ákvað á fundi sínum í gær að þeir sem mæta í afmælið fá gjöf frá félaginu og
verður hún sett við disk hvers og eins.
Ágætu
félagar, nú getið þið tekið þessa helgi strax frá og vonandi mæta sem flestir,
 við erum að vona að það verði 300-400+ bílar sem fjölmenni á
afmælishátíðina og njóti þessara ánægjulegra tímamóta saman.
Þeir  hjá Íþróttamiðstöðinni  í Garði eru tilbúnir
 að taka á móti félögum í Félagi húsbílaeigenda á 30 ára afmælishátíð
félagsins á næsta ári, Björgunarsveitin Ægir og knattspyrnufélagið Víðir hafa
öðlast góða reynslu af að halda slíka hátíð í húsinu og Axel Jónsson
matreiðslumaður hefur séð um veitingar af mikilli snilld þar sem allt gengur
vel og skipulega fyrir sig og alltaf verið nægur matur.
Aðstaðan
í húsinu er mjög góð,  rúmt um alla og séð til þess að gott hljóðkerfi
verði til staðar og góð sýn á sviðið, við húsið er gott pláss fyrir húsbíla og
væntanlega verður komið nýtt tjaldstæði við hlið íþróttamiðstöðvarinnar á
þessum tíma. íþróttamiðstöðin býður upp á frítt í sund og að allir sem vilja
komast í sturtu og  hafi aðgang að þeim.
Matseðill
samanstendur af forrétt sem yrði borinn fram, aðalréttur á hlaðborði,
Lambafille með tilheyrandi og kalkúnn,  kaffi og konfekt.
Gert
er ráð fyrir að fólkið geti komið með drykki með sér, en einnig verði boðið upp
á kaup á drykkjum.
Látum
fylgja með nokkrar myndir frá uppstillingu í salnum.
 

Með kærri
kveðju afmælisnefndin
Daði og
Elín nr. 39Dói og
Fríða nr. 37Soffía nr.
24

Afmælið! Read More »

Aðventukaffi

Kæru félagar.1.des. n.k. býður Félag húsbílaeigenda félögum sínum í aðventukaffi kl. 14.00-17.00 á veitingastaðnum Catalína, Hamraborg 11 í Kópavogi (í hjarta Kópavogs), gott að byrja aðventuna með því að hittast og spjalla saman og eiga notalega stund. Vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Einnig viljum við láta ykkur vita að fyrirhuguð er Góugleði laugardaginn fyrir konudag, dagsetning og staður auglýst síðar.

Aðventukaffi Read More »

Aðalfundur félagsins verður haldinn í Samkomuhúsinu Sandgerði laugardaginn 13.okt. n.k. kl. 14.00.

Dagskrá aðalfundar:  1)  Formaður setur fundinn og gerir tillögu um fundarstjóra. 2) Fundarstjóri gerir tillögu um fundarritara og kynnir dagskrá fundarins.3) Formaður flytur skýrslu stjórnar.4) Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins. 5) Umræður um skýrslu formanns og reikninga félagsins 6) Ákvörðun félagsgjalda.7. Lagabreytingar.8. Kosningar í stjórn og nefndir.9. Önnur mál
Úr fréttabréfinu Ágúst 2012 sem sent var á alla félagsmenn í
tölvupósti til þeirra sem eru með tölvupóst og hinir fengu fréttabréfið í
pósti.
Í ár eru fjögur ár síðan ég
tók við formennsku í félaginu þetta hafa verið skemmtileg ár og lærdómsrík
fyrir mig, ég hef starfað með fjöldann allan af frábæru fólki sem hefur verið
tilbúið að gefa af sér í þágu okkar félags og það ber að þakka. Ég hef tekið þá
ákvörðun að gefa kost á mér í næstu tvö ár ef ég fæ til þess  umboð frá
ykkur. Þau sem geta farið úr stjórninni núna þau Ragna nr. 202, Páll nr. 377 og
Hlíðar nr. 2 gefa einnig kost á sér til næstu tveggja ára fái þau ykkar umboð
til þess.
Ferðanefnd sem nú skipa þau
Anna M. nr. 165, Árni nr. 65, Ásgeir nr. 712  og Hrafnhildur nr. 698
 eru tilbúin að vera áfram næsta árið, fái þau umboð ykkar.
Skemmtinefndin er
 skipuð núna þeim   , Sólborg nr. 16,  Rebekka nr.
791  og Sigurbjörg nr. 377
Sólborg og Rebekka hafa
ákveðið að hverfa úr skemmtinefndinni núna,  en Sigurbjörg nr. 377 gefur
kost á sér áfram,  einnig gefa kost á sér Tryggvi  nr. 40 og hjónin
Gyða og Jóhannes nr. 591  ef þið veitið þeim umboð ykkar.
Skoðunarmenn þau Erla nr.
568, Hjördís nr. 337  og Björn nr. 10 þau gefa öll kost á sér aftur ef þið
veitið þeim ykkar umboð.
Þessir aðilar sem að framan
greinir hafa haft samband við formann og gefið kost á sér en ef það eru fleiri
sem vilja taka þátt í stjórn og nefndum þá endilega hafið samband við formann
félagsins Soffíu og skráið ykkur og takið fram hvort þið viljið fara í stjórn,
ferða-eða skemmtinefnd, eða endurskoðun  og á aðalfundinum verður þá kosið
á milli manna/kvenna. Það er gaman að taka þátt í starfi félagsins, lærdómsríkt
og gefandi og maður kynnist svo vel félögunum.
Við viljum biðja alla þá
sem koma á aðalfundinn að sýna gilt félagsskírteini 2012 við
innganginn.
Að loknum aðalfundi verða
kaffiveitingar í boði félagsins.
F.h. Stjórnar, ferða-og
skemmtinefndar
Soffía G. Ólafsdóttir,
formaður.

Aðalfundur félagsins verður haldinn í Samkomuhúsinu Sandgerði laugardaginn 13.okt. n.k. kl. 14.00. Read More »

Lokaferð/Árshátíð 28.-30.sept 2012

 Lokaferð/Árshátíð 28.-30.sept. 2012

Eins og auglýst hefur verið,  verður Lokaferðin/Árshátíðin í sal Menntaskólans í Borgarnesi, Hjálmakletti, helgina 28.-30.sept. n.k. Dagskráin fyrir þessa helgi liggur ekki endalega fyrir en mun verða sett á heimasíðuna okkar í byrjun 39.viku ársins. En það sem ég veit núna er  að við komum saman í sal menntaskólans á föstudagskvöld  útsvarsþátturinn verður, úrslitakeppni  milli Stjórnar og Rauðu sóknarinnar,við  tökum lagið saman, hafið með ykkur söngbækurnar  og æfum danssporin fyrir laugardagskvöldið.Eftir hádegi á laugardag verður félagsvist, við spreytum okkur á nafnagátum og svo verða verðlaun fyrir spilavistina, nafnagáturnar, og  dregið verður  úr númerum þeirra bíla sem mæta í þessa ferð. En þið sem ætlið að koma á árshátíðina þurfið að fara að skrá ykkur og við þurfum að gefa veitingamanninum upp tölu þriðjudaginn 25.sept. n.k. þess vegna er gott að þið verðið tímalega í því að skrá ykkur. Þið getið sent tölvupóst á husbill@husbill.is, eða hringt í 896-5057 (Soffía), við biðjum svo fólk að leggja inn á reikning félagsins 0542-26-276  kt. 681290-1099  en það kostar 5.000kr. pr. félagsmann,  ef þið bjóðið með ykkur  þá kostar 7.000 kr. pr. gest, látið koma fram kennitölu ykkar. Hljómsveitin Hafrót sér um dansleikinn, það verða góð skemmtiatriði og veislustjórar verða félagar okkar  þau Elín og Daði nr. 39.Húsið opnar kl. 19.00 á laugardagskvöldinu með fordrykk sem félagið býður  upp á. Veislumaturinn kemur frá veitingastaðnum Galito á Akranesi, matseðillinn fylgir hérmeð.

 Hlaðborð:ForréttirGrafinn lax með dillsósu2 tegundir af maukiNautacarpaccio með ristuðum furuhnetumAndarsalat með dvergappelsínum og svörtu sesamToscanamarineruð kjúklingaspjótFerskt salatBrauð og pestóAðalréttirKryddjurtamarinerað lambalæriHunangsgljáð KalkúnabringaMeðalætiOfnbakaðir kartöflubátarRistað grænmetiVillisveppasósaKaffi og konfekt á eftir.
Ágætu félagar við í stjórn og nefndum vonumst til að þið fjölmennið þesa helgi í Borgarnes og við eigum saman skemmtilega helgi.F.h. Stjórnar, ferða-og skemmtinefndar        Soffía G. Ólafsdóttir, formaður

Lokaferð/Árshátíð 28.-30.sept 2012 Read More »

Breyting á árshátíðarferð

 Lokaferð/Árshátíð
28.-30.sept. Þessi ferð átti að vera í Offisera-klúbbinn að Ásbrú en það verður ekki,  venga þess
að ekki náðist samkomulag um verð o.fl. þessa helgi, en við verðum  í Hjálmakletti Menntaskólanum
í Borgarnesi.  Dagskrá fyrir þessa
helgi mun koma inn á heimasíðuna þegar hún verður tilbúin vonandi fljótlega en
á föstudagskvöldinu komum við saman í Hjálmakletti og skemmtum okkur saman og á
laugardeginum verður m.a. félgsvist. 
Verð fyrir félagsmann er kr. 5.000,– kr. pr. mann, 18.ára
og eldri , fyrir gesti pr. mann 7.000.—kr. 18.ára og eldri Fordrykkur verður í boði félagsins er húsið opnar kl. 19.00 Hátíðarkvöldverður,
skemmtiatriði, hljómsveitin Hafrót sér svo um dansmúsíkina fram á nótt.
Veislustjórar verða Daði og  Elín nr. 39 Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst hjá Soffíu formanni í síma 896-5057 eða með
tölvupósti husbill@husbill.is. Í fyrra
voru 200 manns munum við toppa það þetta árið? Er það ekki??. Endilega látið þetta berast með nýjann stað 28.-30.sept. Fréttabréf mun verða sent út næstu daga verið að leggja síðustu hönd á það. Munið næstu ferð í Brautartungu 7.-9.sept. Sjáumst hress í tveimur síðustu ferðunum. F.h. stjórnar, ferða-og skemmtinefndarSoffía

Breyting á árshátíðarferð Read More »

Laugaland í Holtum 17.-19.ágúst.

Ágætu félagar, næsta ferð Félags
húsbílaeigenda er um næstu helgi að Laugaland í Holtum 17.-19.ágúst.
 Skjólsælt og gott FJÖLSKYLDUTJALDSVÆÐI.
Á tjaldstæðinu er mjög góð aðstaða fyrir
börn og unglinga. Tveir sparkvellir eru á staðnum, einn gervigrasvöllur og einn
malarvöllur. Leikvöllur er á svæðinu, sundlaug með heitum pottum, rennibraut og
gufa. Dagskráin fyrir helgina fylgir hér með (sjá neðar) Við höfum afnot af
húsinu frá föstudegi til sunnudags.               
Verð fyrir félagsmann er k.r 2.500 kr.
pr. mann helgin 18.ára og eldri, gestir greiði 3.000 kr. pr. mann 18.ára og
eldri.
Tjaldsvæðið að Laugalandi í
Rangárvallasýslu er í um 6 kílómetra frá þjóðvegi 1 og er beygt hjá
Landvegamótum upp Landveg nr. 26, sama afleggjara og að Galtalækjarskógi.
Vegalengd frá Selfossi er 35 km og frá Reykjavík eru 90 km.
Þið getið farið inn á tjalda.is og valið
Suðurland og skoðað tjaldstæðið að Laugarland.
Endilega prentið út dagskrána ef þið
viljið hafa hana í bílnum hjá ykkur.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest,
stjórn, ferða-og skemmtinefnd, Félags húsbílaeigenda.
Smellið hérna til að sjá dagskrána

Laugaland í Holtum 17.-19.ágúst. Read More »

Nýr netstjóri

Jæja þá er komið að mannaskiptum í netumsjóninni. Eins og þið hafið eflaust tekið eftir hefur síðunni verið minna sinnt að undanförnu en oft áður og stafar það einfaldlega af algerum tímaskorti. Ég hafði lofað Soffíu að vera með henni fram að næsta aðalfundi, en nú hefur nýr netstjóri fundist og var hann viljugur til að taka við strax. Undirritaður því afar þakklátur, því honum hefur frekar leiðst að geta ekki sinnt þessu sómasamlega:-) 

Því býð ég nýjan netstjóra, Berg Haukdal,  velkominn í nýju stöðuna og óska honum velfarnaðar í leik og starfi.

Netfang nýs netstjóra verður hið sama og fyrr: netstjori@husbill.is

Þau ykkar sem þurfið hinsvegar að ná í mig getið t.d sent e-mail á: steinigunn@gmail.com Beztu ferðakveðjur og óskir um að við sjáumst sem fyrst!Steini og Helga á(alltof lítið hreyfðu) Viðhaldinu:-)

Nýr netstjóri Read More »

Nú styttist í Stóru ferðina!

Kæru félagar, nú tel ég að flestir séu á faraldsfæti, vítt og breitt um okkar fallega land, sjálf er ég á Akureyri þessa stundina á N1 knattspyrnumótinu í bongóblíðu á tjaldstæðinu við Þórunnarstræti, bara gleði og gaman.

Nú er bara vika í Stóru ferðina okkar á Vestfirðina og vonumst við í stjórn og nefndum að sjá ykkur sem flest í þessari ferð en Vestfirðirnir hafa upp á svo margt að bjóða og fegurðin er þar mikil og svei mér þá að það hvíslaði að mér lítill fugl að veðrið yrði bara gott. 

Ég vil byrja á því að minna ykkur á að Orkan er að bjóða félögum í Félagi húsbílaeigenda- 10 kr. afslátt af bensínverði einmitt þessa viku  sem við erum í Stóru-ferðinni á öllum Orkustöðvum sínum,  endilega náið ykkur í lykil ef þið eruð ekki þegar komin með hann, sjá: orkan.is  (ef þið hafið áhuga)

Nú styttist í Stóru ferðina! Read More »