Stóra ferð
Góða og blessaðan daginn.
Hér koma nokkur praktísk atriði varðandi Stóru ferðina okkar. Fyrst er nú t.d.gott að vita nákvæmlega hvert skal haldið.
Ég mun formlega setja ferðina að kvöldi föstudagsins 10. júlí á tjaldstæðinu á Akranesi þar kostar nóttin kr. 1000. á mann, hver borgar fyrir sig. Við gistum þar í tvær nætur.
Þaðan ökum við að Varmalandi þar sem útilegukortið gildir, það spáir fínasta þurrviðri þar í millitíðinni svo við treystum á að það verði í góðu lagi, það hefur verið blautt. Við gistum þar í tvær nætur.
Frá Varmalandi ökum við í Húsafell, þar kostar nóttin kr. 2200. fyrir tvo í bíl og kr. 1250. fyrir einn. Þriðja nóttin verður með 50% afslætti! Við gistum þar í þrjár nætur.