admin

Mýrdalsjökull minnir á sig – Skrifað: 03:30

Búið er að loka fyrir umferð frá Hvolsvelli og að Skógum. Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna, segir að um 20 bæir undir Eyjafjöllunum næst Eyjafjallajöklinum sjálfum hafi verið rýmdir vegna gosóróa. Fólki hafi verið gefnar leiðbeiningar um hvert skyldi halda eða í næstu fjöldhjálparstöð líkt og þegar gosið hófst á Fimmvörðuhálsi. Óróinn nú sé undir toppgíg Eyjafjallajökuls. Almannavarnir eiga eftir að meta hvort farið verði í rýmingu á stærra svæði.

Mýrdalsjökull minnir á sig – Skrifað: 03:30 Read More »

Verndaðu bílinn gegn öskufalli – þú færð ekkert út úr tryggingunum ef hann skemmist!

Áttu bíl, fellihýsi eða tjaldvagn sem liggur undir skemmdum vegna öskufalls eða annarra afleiðinga af eldgosinu í Eyjafjallajökli? Mundu þá að tjón á þessum eignum er á þína ábyrgð. Tryggingafélög bæta ekki skemmdir af völdum náttúruhamfara. Það gerir viðlagatrygging en undir hana falla eignir sem eru brunatryggðar, svo sem húseignir, ekki lausafé á borð við bíla, fellihýsi eða tjaldvagna.

Verndaðu bílinn gegn öskufalli – þú færð ekkert út úr tryggingunum ef hann skemmist! Read More »

Gleðilegt sumar!

Félag húsbílaegenda óskar félagsmönnum, svo og íslendingum öllum, gleðilegs og farsæls ferðasumars með kærri þökk fyrir veturinn. Samkvæmt kenningunum ætti sumarið að geta orðið hlýtt þar sem nú fraus saman sumar og vetur. Og ekki eru það verri vísindi en hver önnur:-)

Gleðilegt sumar! Read More »

Af skoðunardeginum 24. apríl hjá Frumherja!

Á föstudeginum 23. apríl mættu strax nokkrir bílar á planið hjá Frumherja á Hesthálsi, tilbúnir í skoðunina daginn eftir. Reyndar þurftu ekki allir að láta skoða en vildu samt koma og fylgjast með og hitta félagana. Þetta voru 7-8 bílar og lögðum við baka til við skoðunarstöðina, nóg pláss og við vorum alveg laus við alla umferð. Nóg er plássið þarna.Laugardagurinn rann  upp, sól var úti en frekar kalt, ekta gluggaveður. Bílarnir byrjuðu að streyma að uppúr kl. hálf níu um morguninn og komu svo þétt eftir það.

Af skoðunardeginum 24. apríl hjá Frumherja! Read More »

Fyrsta ferð sumarsins!

1. ferð sumarsins 7. – 9. maí 2010, að Félagsgarði í Kjós.Þá er nú alveg komið að því að fyrsta ferðin renni upp en það er eftir 3 daga, spáin er  þokkaleg, einhver súld á að vera en enginn er verri þó hann vökni. Veðurguðirnir lofa okkur mun betra veðri en var á síðastliðnu ári.Gjald fyrir félagsmenn (sem greitt hafa árgjaldið) er 1.000 kr, pr. mann 18.ára og eldri.Gjald fyrir gesti er 1.500 kr. pr. mann 18.ára og eldri.Þeir sem ekki hafa greitt félagsgjaldið  greiða eins og gestir en geta greitt árgjaldið hjá formanni.Við viljum biðja ykkur vinsamlegast að hafa aðganseyrinn tilbúinn í reiðufé það flýtir svo fyrir afgreiðslu.Við viljum biðja þá sem eru með doppur í glugganum,

Fyrsta ferð sumarsins! Read More »

Að gefnu tilefni

Einhverjir virðast misskilja, illilega, tilgang gestabókarinnar okkar og því er nauðsynlegt að benda á að Gestabókin er ekki frísvæði fyrir auglýsingar einstalinga og/eða fyrirtækja. Þeir sem hafa áhuga á því að auglýsa vörur, þjónustu og/eða annað, sem á sérstakt erindi við húsbílaleigendur, er bent á að senda beiðnir um slíkt til netstjóra og/eða formanns á eftirtalin netföng: netstjori@husbill.is eða husbill@husbill.is  – Félag húsbílaeigenda.

Að gefnu tilefni Read More »